|
Sérsniðið skyndihjálparnámskeið verður haldið fimmtudaginn 11.03. kl: 19-22 í Reykjavík (staðsetning auglýst síðar). VÍK í samstarfi við strákana í Slökkviliðinu sem séð hafa um sjúkrabílinn á keppnunum hjá okkur hafa sett saman sérsniðið skyndihjálparnámskeið fyrir hjólafólk. Þetta námskeið hentar þeim sem stunda æfingar í Moto-Cross, Enduro og eru í ferðamennsku. Eftirfarandi eru helstu þættir sem farið er í: Lesa meira af Sérsniðið mótorhjóla-skyndihjálparnámskeið  Hjalli #139 er að verða hrikalega massaður Eftir að staðfesting um endurnýjun Klausturskeppninnar barst, jókst áhugi fólks verulega á að koma sér í hörkuform fyrir sumarið. Allt í einu er keppnisfólk, jafnt sem aðrir, tilbúnir að leggja mun meira á sig til að úthaldið og styrkurinn verði 100% þegar kemur að átökum í Maí. Myndavélin var tekin með á æfingu hjá einum þeirra hópa sem æfa á fullu, svona rétt til þess að leyfa öðrum að sjá hvað væri í gangi hjá þessu ferska og kraftmikla fólki. Lesa meira af Hörkuátök hjá Drullumöllurum.
 Kári Jónsson vann fyrstu umferðina Á sunnudaginn 14. febrúar nk. munu Nítró og Vélhjólaíþróttaklúbburinn endurtaka leikinn og bjóða til mótorsportveislu í Reiðhöllinni í Víðidal. Þetta er í annað skipti á Íslandi sem svona keppni er haldin en síðasta er bæði keppendum og áhorfendum ógleymanleg. Skemmtun fyrir áhorfendur og pressa á keppendur. Brautin síðast reyndist mörgum ótrúlega erfið og þess er að vænta að menn mæti enn grimmari til leiks núna þegar menn vita hverju má búast við. Brautin um helgina verður þó án efa talsvert breytt og með öðru sniði og ætti að bjóða upp á harða keppni milli allra bestu hjólaökumanna landsins. Sem fyrr eiga keppendur von á spennandi hindrunum; stökkpöllum, staurabreiðum, stórgrýti, hleðslusteina- og dekkjahrúgum, kubbagryfjum og mörgu fleira. Lesa meira af Önnur keppni vetrarins í Endurokrossi á sunnudaginn í Reiðhöllinni
Næstkomandi miðvikudagskvöld, 10. febrúar, stendur Ferða- og útivistafélagið Slóðavinir fyrir Sögustund í samvinnu við Bernhard Vatnagörðum. Nú sem endranær er sögustundin helguð frumkvöðlum í ferðamennsku á mótorhjólum þar sem sérstaklega er horft til ferðalaga í óbyggðum Íslands. Í sal verða til sýnis nokkur af þeim mótorhjólum sem notuð voru til ferðalaga hér á Íslandi í denn. Á seinasta ári tókst þessi viðburður vonum framar og mættu yfir 100 manns og hlustuðu á sögur og horftu á myndir af ferðalögum sem farnar voru fyrir rúmlega þrjátíu árum síðan. Í ár verður róið á svipuð, en þó ekki sömu mið, og verða m.a. sagðar sögur frá ferð Snigla á Látrabjarg, vorferð í Landmannalaugar á torfæruhjólum, ágústferð á NA-land ásamt fleiri sögum. Njáll Gunnlaugsson, höfundur Þá riðu hetjur um héruð – 100 ára saga mótorhjólsins á Íslandi, segir frá og sýnir myndir úr einstöku safni sínu. Sögustundin fer fram hjá Bernhard í Vatnagörðum, hefst kl. 19.00 og er allt áhugafólk um ferðalög á mótorhjólum velkomið. Veitingar í boði Bernhard og Slóðavina. Til sölu verður bók Njáls Gunnlaugssonar, en andvirði bókarinnar fer í uppbyggingu á mótorhjólasafni Íslands sem nú er í smíðum á Akureyri (www.motorhjolasafn.is).
Á stjórnarfundi VÍK voru miklar pælingar um framtíð félagsins. En klárlega hefur komið í ljós að mikill eftirspurn er eftir aðgengi að innanhúsbraut fyrir félagsmenn, bæði til æfinga og keppnishalds. VÍK mun kynna á næsta aðalfundi stórhuga hugmyndir um hvert félagið vill stefna á næstunni, bæði hvað félagið varðar og alla aðstöðu. Var mikill hugur í mönnum og ljóst er að þrátt fyrir barlóminn í þjóðfélaginu, að þá heldur lífið svo sannarlega áfram og félagið þarf að huga að framtíðinni og uppbyggingu félagsins. Félag eins og VÍK getur ekki leyft sér þann munað að leyfa félagsstarf dofna vegna lágdeyðu og úrræðaleysi stjórnmálamanna. Lesa meira af Miklar pælingar og stór framtíðaráform
Fyrsta námskeið vetrarins, hjá VÍK, verður haldið í kvöld, mánudag, kl. 19.30 – 21.30 Fyrirlestur / kennsla frá íþróttanæringafræðingi. Farið verður yfir hvernig hjólaíþróttafólk ætti að stjórna mataræði sínu fyrir æfingar, keppnir og almennt. Fyrirlesari er Fríða Rún Þórðardóttir Íþróttanæringarfræðingur. Staðsetning: Í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, fundarsalur D, 3. hæð. Kostnaður: Kr: 500.- Greitt á staðnum. | |
Nýlegar athugasemdir