|
höfundur: Hjörtur L. Jónsson Áverkar í Endurokeppnum . Í september 1996 var haldin fyrsta Endurokeppnin (sérleið við Litlu Kaffistofuna)sem ég starfaði við. Í þessa keppni mættu 27 keppendur og af þeim slösuðust tveir (viðbeinsbrot og brákaður hriggur). Meðalhraði sigurvegara var 60, km á kl. Keppni 2. September 1997 (sérleið við Litlu Kaffistofuna) mættir voru 35 keppendur og af þeim rifbeinsbrotnaði 1 keppandi. Meðalhraði sigurvegara var 56 km, á kl. Lesa meira af Áverkar í enduro Kistufellstúrinn er nú í fullum undirbúningi hjá Vélhjól og Sleðar. Gert er ráð fyrir einhverjum útlendingum og er mikill hasar í gangi. Sjá nánar áwww.biker.is
Hetja síðustu helgi er ekki Hakkinen heldur Karl Gunnlaugsson. Ef einhverjum tekst að ota góðum hjólatúr í sjónvarpið þá er það hann. Hjólamenn kipptust til í sófanum þegar fréttin birtist og jafnóðum rifjuðu upp hina svæsnustu hjólatúra sem þeir hafa sjálfir lennt í. Einhvernveginn varð himininn heiðskýr og og birti vel til í þessum litla hjólaheimi og vonandi að umfjöllum fjölmiðla verði eins jákvæði og var nú um helgina. Stórt myndasafn hefur verið birt áwww.ktm.is úr þessum túr og vill vefstjóri minna menn á að gera meira af þessu. Þeir sem ekki hafa tækifæri á að birta myndir og frásögn skulu einfaldlega sníða þetta til í tölvunni og senda sem fréttaskot. Athygli skal vakin á að myndasafnið inniheldur nokkra appelsínuhúðaða “berga” sem eru ekki við hæfi barna 
sta sunnudag viðbeinsbrotnaði Guðmundur Bjarnasson Ameríkufari. Var hann staddur út á Reykjanesi, akandi hraunslóðann meðfram Núpshlíðarhálsi sem nær frá nýju borholu Hitaveitunnar við Trölladyngju að Krísuvíkurvegi. Tveir jeppar voru á sömu slóðum og keyrðu þeir Guðmund á sjúkrahús. Guðjón Magnússon og Ishmael David voru með honum og sáu þeir um að koma hjólinu í bæinn. Guðmundur reyndist illa viðbeinsbrotinn og virðist sem einhver bein-bútur / flís sé að flækjast milli brotanna. Ekki er gert ráð fyrir neinni hjólamennsku frá hans hendi fyrr en síðar í haust.
21-22 júlí verður 3rd edition af KTM ferðinni 2001. Ferðin er eingöngu fyrir KTM eigendur og verður farið inn á svæðið fyrir ofan Þjórsárdal. Gist verður í svefnpokagistingu Hólaskógi við Sultartangavirkjun. Grill og Geðveiiiiiikkki. Leiðangursstjóri er Einar Sigurðarson Íslandsmeistari í Enduro og lofar hann skemmtilegum slóðum sem henta öllum, byrjendum sem lengra komnum. Nánari upplýsingar og skráning er hjá Ella Æsta í MOTO.
Á ferð minni um England um daginn lenti ég í óvæntri uppákomu, Steve félagi minn sem keppti með mér í Dubai Rally var búinn að undirbúa dag fyrir okkur félagana “út að leika” með CCM verksmiðjunni. CCM verksmiðjan er Bresk og smíðar Enduro og Super-Moto hjól með STÓRUM Rotax móturum. Verksmiðjan hefur öðlast nýtt líf eftir að Frú Fogarty eiginkona World Superbike heimsmeistarans Carl Fogarty keypti meirihlutinn í fyrirtækinu. CCM skipuleggur daga um allt Bretland þar sem menn geta komið og tekið þátt í Super-Moto Endurance keppnum sem eru uppsettar fyrir 3-4 keppendur í liði og er keppnin 2 tímar og 1 tími í æfingu og qulifying á undan. Það má líkja svona degi við Go-Kart á 2 hjólum. Keppnin var haldinn á Three Sisters circuit sem er ofvaxinn Go-Kart braut og einning notuð fyrir klúbbkepnir á hjólum. Mest gaman var að fylgjast með Kónginum Carl Fogarty en hann er hreint ótrúlegur, einnig var David Jeffrais góður en hann er eini maðurinn til að fara hringinn á Mön hraðar en 125 mílur. Geta mín var bágbori n og land og þjóð til skammar en liðið okkar endaði þó í 4 sæti af 16. Það er eflaust hægt að finna upplýsingar um CCM á netinu fyrir þá sem hafa áhuga. Þetta væri einnig gaman að skoða hvort hægt væri að gera á kart brautinni í Krísuvík eða Njarðvík. Super-Moto kveðja, Katoom | |
Nýlegar athugasemdir