Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Vestmannaeyjar í frábæru standi.


Við fórum nokkur til Vestmannaeyja um helgina, þar sem aðstæður voru alveg frábærar, hefði varla getað verið betra þó við hefðum farið til útlanda. Brautin var alveg meiriháttar og tók vel á. Mæli klárlega með að skella sér til Eyja ef menn vilja komast í alvöru GP braut yfir vetrartímann.


Harðfeni á Heklusvæðinu


Næturmotocross í Bolaöldu á fimmtudagskvöldið kl. 20

Á fimmtudagskvöldið verður gerð tilraun með að keyra næturmotocross í Bolaöldubrautinni. Þeir sem prófuðu brautina um helgina voru gríðarlega ánægðir með aðstæður og skemmtu sér frábærlega. Við erum búnir að fá lánaðar tvær ljósakerrur sem lýsa brautina mjög vel upp í snjónum. Garðar mætir snemma og fer yfir brautina eftir þörfum og gerir húsið og kaffið klárt.Nú er bara að mæta með trella/karbíta undir hjólunum og láta vaða. Miðarnir fást í Litlu kaffistofunni – sjáumst annað kvöld.


Bolaöldubrautin rudd í dag

Garðar að fara uppí Bolaöldu á eftir og kanna með aðstæður og ryðja brautina svo hægt verði að keyra hana á nöglum/karbítum. Allir eru hvattir til að mæta upp eftir og prófa.

Brautin var keyrð á þriðjudaginn og þá voru Einar, Gunni og fleiri að stökkva pallana og skemmta sér fyrir allan peninginn. Brautin verður bara betri í dag þannig að það hlýtur að verða tóm hamingja þar. :)

Kveðja, Keli


Frábært veður og braut í Bolaöldu núna

Garðar er búinn að skafa brautina og slétta hana. Núna er frostlaust og bjart veður og brautin í frábæru standi. Á morgun er spáð frosti og því síðasti séns í bili að hjóla í frostlausu. Miðarnir eru í Kaffistofunni, have fun!


Næturmotocross í Bolaöldu annað kvöld!!

Merkilegt þetta veður, nú er motocrossbrautin í Bolaöldu frostlaus og í frábæru standi og það um hávetur. Arnar Ingi #616 var þar í gær og brosti allan hringinn, brautin ófrosin, röttar í beygjum og pöllum og aðeins einn pollur. Það er því hugmynd að breyta næturenduroinu tímabundið í næturmotocross í brautinni annað kvöld, miðvikudagskvöld kl. 20. Landsnet lánar okkur eitt mastur með kösturum sem stillt verður upp í brautinni ásamt bílum þar sem því verður komið við. Auk þess mæta menn bara með allan tiltækan ljósabúnað á hjólin og láta vaða í brautina. Það er spáð 5 stiga hita og lítils háttar rigningu þannig að veðrið spillir ekki fyrir. Slóðarnir eru væntanlega talsvert blautir þannig að þetta er það besta sem býðst. Heitt kaffi/kakó og piparkökur í húsinu. Skemmtum okkur í skammdeginu! :)

Síða 33 af 36« Fyrsta...20...3132333435...Síðasta »