Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Álfsnesbraut opnar

Álfsnesbrautin opnar á morgun, miðvikudag, kl: 17.00. Eftir flottar lagfæringar.

Áður en hleypt verður í brautina er skilyrði að allir labbi einn hring í brautinni og hreinsi sjáanlega steina. Nú eða skipuleggja sig vel og allir taki einn kafla. Muna eftir miðum – árskortum á hjólunum. Enginn miði – árskort = brottvísun úr brautum VÍK. Miðar fást í N1 Mosó.

Brautarnefnd.


Álfsnesbraut!!!

Við ýtrekum að Álfsnesbraut ER LOKUÐ!   ÖLL UMFERÐ HJÓLA ER STRANGLEGA BÖNNUÐ Í BRAUTINNI.  Það á eftir að þjappa uppstökk og palla með stórum bíl/jeppa.  Ef einhver hefur bíl til slíkra verka,  þá má sá hinn sami hafa samband við Reynir í síma 8988419.  Engin þjöppun = Engin opnun :(

Opnun brautarinnar verður auglýst þegar þjöppun er lokið.

Brautarstjórn


Álfsnesbraut

Álfsnesbraut er lokuð.

Verið er að lagfæra brautina til að gera hana góða fyrir heljarmikla æfingatörn næstu daga.

Opnun verður auglýst .

Kv.

Reynir og Álfarnir


Bolaöldubraut opnar kl. 18 í kvöld í toppstandi

Brautin í Bolaöldu er í toppstandi eftir breytingar undanfarinna daga og opnar í dag kl. 18. Nú hefur rignt hressilega síðustu tímana en rigningin er hætt núna og spáin er mjög góð fyrir kvöldið. Svæðið hefur því ekki litið betur út í langan tíma. Breytingarnar líta frábærlega út, brattari uppstökk, lendingar og nokkrar tæknilegar breytingar á beygjum og fleiri köflum sem lofa mjög góðu. Munið eftir miðunum hjá Olís í Norðlingaholti og í kaffistofunni.


Bolaöldubraut.

Stóra brautin í Bolaöldum verður lokuð frá og með deginum í dag. Opnar aftur á fimmtudag kl: 18:00.

Við erum að fá jarðýtu í brautina og ætlum að gera smá breytingar.

Þeir sem vilja fá forskot í brautina á fimmtudag! þá er það hægt með því að mæta tímalega og tína grjót.

Barnabrautir eru opnar sem og Enduro slóðar. En því miður býður veðrið okkur ekki uppá heilbrigða vökvun.


Bolaöldubraut, Miðvikudag

Garðar, yfirgæslumaður Bolaöldusvæðisins, mun hafa MX brautina lokaða til kl 19:00 á morgun.

Verið er að gera smá lagfæringar í brautinni sem taka fram til 19:00. Óskað er eftir áhugasömum til að aðstoða frá kl 18:00 – 19:00.

Nú er bara að dusta rykið af félagsandanum, mæta í Bolaölduna á morgun, láta gott af sé leiða og skella sér síðan nokkra hressandi hringi í brautini. Og það sem meira er að það ringdi alveg ágætlega í brautina í dag, rakastigið ætti þar af leiðandi að vera gott.

Síða 20 af 36« Fyrsta...1819202122...Síðasta »