Nýjar smáauglýsingar

YZ450F

Er að selja 2005 árg. af yz450f. Hjólið er í ...
[Read more]

Honda-CRF250R-2008-Til-Slu

Honda CRF250R 2008 Til Sölu!

Honda CRF 250r 2008 módel.Hjólið er í mjö...
[Read more]

Geggja-CR250-05-til-slu--klink

Geggjað CR250 05 til sölu á klink

Flott og gott CR250 2005 til sölu.Demparar nýyfi...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


MotoMos

Opnunartímar MotoMos

Mánudaga-föstudaga frá 10-21
Laugardaga og sunnudaga frá 10-18

Stranglega bannað að hjóla utan þessara tíma!

Miðaverð og árskort

Stór hjól: 1.000 kr

Lítil hjól: 500 kr

Árskort:
Stór hjól: 20.000 kr
Lítil hjól: 10.000 kr

Fyrir félaga í MotoMos ætlum við nú að veita fjölskylduafslátt á árskortum, 20% afsláttur ef keypt eru 2 kort  eða fleiri.

Reglan er þannig að kaupa þarf öll kortin í einu og afslátturinn virkar bara á meðlimi fjölskyldunnar (sama lögheimili).

Árgjald í félagið: 4.000 kr, 6.000 fyrir fjölskylduna

Hvar er brautin.

Umgengnis- og öryggisreglur MotoMos.

Reglur þessar gilda fyrir Motocrossbraut MotoMos í Tungumelum.

1.      Öll mótorhjól verða að vera löglega skráð og tryggð samkvæmt Íslenskum lögum.
2.      Allir ökumenn þessara tækja skulu hafa tilskilin ökuréttindi miðað við aldur og stærð ökutækis samkvæmt íslenskum lögum og reglum.
3.      Það ökutæki sem er í notkun á svæðinu skal vera í skoðunarhæfu keppnisástandi. Og púst standast MSÍ lög (98db).
4.      Allur akstur í brautinni utan opnunartíma er bannaður.
5.      Öll torfæruskráð hjól skulu flutt á þar til gerðum tækjum til og frá braut.
6.      Allur akstur utan brautar og tengistíga er stranglega bannaður.
7.      Akstur á svæðinu skal vera ábyrgur og ökumenn skulu hvorki stofna sjálfum sér né öðrum í óþarfa hættu.
8.      Á meðan vinna fer fram í brautinni, hvort sem er með hrífur eða vinnuvélar þá er brautin undantekningarlaust LOKUÐ og allur akstur í henni stranglega bannaður.
9.      Við akstur í pitti, á bílastæði og við félagsheimili skal gæta ýtrustu varkárni gagnvart fólki og verðmætum. Halda skal ökuhraða í lágmarki (fyrsti gír) og varast grjótkast.
10.  MX braut MotoMos skal ekin rangsælis, akstur á gegn akstursstefnu í brautinni er stranglega bannaður. Einungis er leyfilegt að nota til þess gerða stíga til styttingar á braut.
11.  Allir ökumenn sem aka á svæði MotoMos skulu nota hlífðarbúnað svo sem: hjálm,brynju, krossskó, hnéhlífar,olnbogahlífar og hálskraga. Auk þess skal ökumaður vera í viðeigandi fatnaði sem stuðlar að öryggi hans.
12.  Lausaganga dýra er bönnuð á svæðinu.
13.  Ökumenn aka alfarið á eigin ábyrgð á aksturssvæði MotoMos.
14.  Brot á reglum þessum varða tafarlausan brottrekstur af svæðinu og jafnvel útilokun frá frekari akstri.