Þó að það sé vetur situr stjón VÍK ekki auðum höndum.

Hér eru punktar úr fundargerð frá síðasta stjórnarfundi: Fullt af málum sem er verið að vinna í.

Fundargerð

Stjórnarfundur VÍK 10. janúar 2013 kl. 20:00

Fastir fundir ákveðnir – fyrsti þriðjudagur í mánuði kl. 20.00

Fjórhjólaleiga

Er að tæma gámana og hætta rekstri, Gámarnir verða fluttir af svæðinu

Leigan býður hjól á góðu verði

Skemma

Verið er að rífa gamla hlöðu með stálgrind. Mögulega er hægt að hirða stálgrindina og kaupa klæðningu á húsið.   Skoðum málið.

Ískeppni á Rauðavatni 19. janúar

Spáin lítur ágætlega út fyrir þessa helgi. Reykjavíkurborg er með beiðni um leyfi fyrir akstri á Rauðavatni og eiga eftir að svara. Leirtjörn er möguleg til vara ef við fáum neitun. Skipulag keppni verður væntanlega útsláttarkeppni en kemur ekki í ljós fyrr en skráning er klár. Hugsað svipað og samhliða svigkeppni.

Klaustur

Vefur – valin vefslóð www.enduro-klaustur.is

Spurning að bjóða upp á fleiri flokka. Flottasti búningurinn, Flottasti pitturinn

Hjóna flokkur, Paraflokkur, Eldri hjól en 1995 – vintage iron keppni

 

Vantar meira og oftar efni inn á www.motocross.is

Allir stjórnarmenn vinsamlegast vera duglegir að vakandi fyrir að pósta á vefinn eftir efnum.

           

Hönnunarmál:

!!! var búinn að bjóðast til að hanna fyrir félagið – vefinn, merki fyrir Bolaöldu    Klaustursvefinn, merki keppninnar, plaköt.  

Félagsgjöld 2013

Setjum upp texta og sendum á stjórn til að gera klárt á vefinn

!!! ætlar að tala við !!! um að tengja kortagáttina fyrir fjölgreiðslur á vefinn

Tímabilið 1. Mars 2013 til 1. Mars 2014

Handhafi fær:

Félagsgjald, Árskort í brautir félagsins, Afslættir í verslunum, Aðgang að húsinu, Plastkort með félagsskírteini, Límmiða á hjólið/hjálminn, Öll aðstaða á svæðunum, Þvottaaðstaða, klósett, búnings og kaffiaðstaða, Vökvunarkerfi, Reglulegt viðhald á brautum, Enduroslóðakerfi, Ofl.

Félagsstarf:

Næringar námskeið: í janúar

Geir Gunnar Andersen crossfittari, klár í að halda fyrirlestur

!!! athugar með Geir og ákveðna dagssetningu

Skyndihjálparnámskeið: í febrúar

!!!, athuga með aðilann sem kenndi okkur í fyrra – athuga hana aftur

Vefmyndavél – !!! er búinn að finna vélina og lætur vita hvað hún kostar og þarf að gera. Skoða vélina í Hlíðarfjalli og Vegagerðina og hvað þeir eru að nota.

Fundi slitið 21:30

4 hugrenningar um “Þó að það sé vetur situr stjón VÍK ekki auðum höndum.”

  1. Skemman væri hugsuð sem tækjageymsla. Skemma sem gæti hýst braut væri allt annað og mun stærra dæmi. Gulli athugaðu með góðann spons í það þarna í ameríkuhreppi.

  2. Greinilega gott starf í gangi þarna, hafið þökk fyrir !

    Vil benda ykkur á að hafa samband við Frey Aðalgeirsson (s:660-1701) hjá LÍV varðandi vefmyndavélar, þeir hafa verið að setja upp vélar hér og þar og ættu að geta gefið góð ráð.

    P.s. Hjónaflokkur á Klaustri myndi slá í gegn á mínu heimili !

Skildu eftir svar