Úrslit frá Enduróinu á Akureyri

Kári Jónsson kom fyrstur í mark í báðum umferðunum í Íslandsmótinu sem fram fór á Akureyri í gær. Ingvi Björn Birgisson veitti honum nokkra keppni í seinni umferðinni og endaði aðeins 50 sekúndum á eftir. Kári leiðir Íslandsmótið í ECC-1 með fullt hús stiga. Guðbjartur Magnússon náði ekki að klára seinni umferðina og fékk því engin stig, hann datt þar af leiðandi úr toppsætinu niður í það fjórða í ECC-2 keppninni. Má segja að spennan sé mest í þeim flokki núna.

Keppnin fór annars fram í góðu veðri og skipulagningin tókst vel. Flæðið var gott í brautinni en að venju voru nokkrar brattar og langar brekkur sem voru nokkuð erfiðar viðureignar.

ECC-1

  1. Kári Jónsson
  2. Bjarki Sigurðsson
  3. Gunnlaugur Rafn Björnsson

ECC-2

  1. Ingvi Björn Birgisson
  2. Jónas Stefánsson
  3. Valdimar Þórðarson

Kvennaflokkur

  1. Bryndís Einarsdóttir
  2. Signý Stefánsdóttir
  3. Aníta Hauksdóttir

B-flokkur

  1. Þórarinn Þórarinsson
  2. Ernir Freyr Sigurðsson
  3. Reynir Hrafn Stefánsson

40+B

  1. Leifur Þorvaldsson
  2. Birgir Guðjónsson
  3. Gunnar Haraldsson

B-85cc

  1. Viggó Smári Pétursson
  2. Sebastían Georg Arnfj Vignisson

Tvímenningur

  1. Gunnar Sölvason + Atli Már Guðnason
  2. Baldvin Þór Gunnarsson + Kristófer Finnsson
  3. Jóhann Gunnar Hansen Arnarson + Fjalar Úlfarsson

Nánari úrslit má nálgast hér

Þriðja umferðin – hring eftir hring á Racer Time Live

Fjórða umferðin – hring eftir hring á Racer Time Live

Yfirlit og staðan í Íslandsmótinu er á MyLaps.com

Ein hugrenning um “Úrslit frá Enduróinu á Akureyri”

  1. Flott braut. Hefði verið ennþá betri hefði rignt áður.Norðanmenn leggja metnað í þetta eins og áður.

Skildu eftir svar