Kvikmyndahátíð mótorhjólafólks

MotoMania er fyrsta kvikmyndahátíðin hérlendis þar sem þemað er mótorhjól. Myndirnar sem sýndar verða eru vinsælustu mótorhjólamyndir ársins, Fastest og TT3D-Closer to the Edge og er sýningarkvöldið 11. desember næstkomandi í Bíó Paradís á Hverfisgötu. Það er Njáll Gunnlaugsson bifhjólakennari sem stendur fyrir þessari hátíð með fulltingi ökuskólans Aðalbraut og Biking Viking mótorhjólaleigunnar. Skoða má meira um  myndirnar hér:

Um myndirnar:
Fastest:
Myndin fjallar um MotoGP heimsmeistarakeppnina og er tekin á tímabilinu 2010-2011. Þulur er enginn annar en Ewan McGregor og segir hann frá því hvernig Valentino Rossi eltist við tíunda heimsmeistaratitil sinn en hann þurfti að berjast við marga góða keppendur, meðal annars landa sinn Marco Simoncelli sem lést í kappakstri ekki alls fyrir löngu. Rossi eða „The Doctor“ eins og hann er kallaður, fótbrotnaði í heimakeppni sinni en náði að koma aftur til keppni aðeins 40 dögum seinna. Jorge Lorenzo stóð að lokum upp sem sigurverari en myndin, sem er í fullri lengd, lýsir vel innviðum keppninnar og þeim keppendum sem glíma við ein erfiðustu ökutæki á jarðkringlunni.

Closer to the Edge – TT3D
Þessi mynd lýsir á einstakan hátt hinni margfrægu og jafnframt alræmdu mótorhjólakeppni á eynni Mön, einum hættulegasta kappakstri sem haldin er ár hvert. Keppt er á götum eyjunnar og ekkert má út af bregða hjá keppendum til að enda ekki á húsveggjum eða götusteinum. Þess vegna eru keppendurnir alveg sér á parti og er sérstaklega fylgst með einum þeirra, bifvélavirkjanum Guy Martin, og fórnum þeirra sem leggja það á sig að keppa í einstakri keppni í sinni röð.

 

Nánar um hátíðina á Facebook undir MotoMania

Skildu eftir svar