Nýjar smáauglýsingar

YZ450F

Er að selja 2005 árg. af yz450f. Hjólið er í ...
[Read more]

Honda-CRF250R-2008-Til-Slu

Honda CRF250R 2008 Til Sölu!

Honda CRF 250r 2008 módel.Hjólið er í mjö...
[Read more]

Geggja-CR250-05-til-slu--klink

Geggjað CR250 05 til sölu á klink

Flott og gott CR250 2005 til sölu.Demparar nýyfi...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


Vetrarskemmtikeppni á laugardaginn!

Ótrúlegt en satt þetta eru aðstæður í Bolaöldubraut 18.11.11

Já gott fólk, hér er nánast sumarblíða alla daga og allar brautir í toppstandi. Við ætlum því að prófa að blása til skemmtikeppni á laugardaginn í Bolaöldu. Fyrirvarinn er auðvitað enginn en hvað með það – notum tækifærið þegar veðrið er svona bjánalega gott!

Keppt verður bæði motokrossi og stuttu liðaenduroi og yngstu krakkarnir fá líka sérkeppni fyrir sig.

Krakkakross kl. 11
Allir ökumenn framtíðarinnar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Skyldumæting fyrir alla sem hafa verið á æfingunum hjá Helga, Aroni og Gulla og alla aðra sem eru á 50, 65 og að byrja á 85cc hjólum. Keyrt verður í 85 brautinni og foreldrar hjálpa til við að gæta fyllsta öryggis.

Síðan verður keppt í bæði motokrossi og stuttu liðaenduroi.Við byrjum á motokrossinu og verðum með tvo flokka:
A (vanir keyrarar úr mx-open, mx2, 40+, unglinga og jafnvel hraðir 85cc) keyra 2×15 mínútur
B (85cc, kvenna, byrjendir og aðrir sem vilja bara taka því rólega) keyra 2×10 mínútur. Í enduroinu ætlum við svo að raða saman A og B ökumönnunum í tveggja manna lið og keyra léttan endurohring í klukkutíma. Hægt er að keppa í bæði motokrossi og enduro eða öðru hvoru.

4000 kr. keppnisgjald fyrir stóru hjólin bæði fyrir motokross og enduro og 1000 kr. fyrir krakkana. Skráning er opin HÉR!!! Drífa sig að skrá sig svo við vitum hvort einhverjir mæti :) ATH. tímatökusendar verða notaðir í motocrossið, þeir sem þurf að leigja sendi geta gert það í Nítró fyrir kl. 18 á föstudag. Sértilboð er á leiguverðinu fyrir þessa keppni aðeins kr. 2.000,-

Lausleg dagskrá:
Mæting kl. 1o
Krakkakrosskeppni kl 11 – flott verðlaun fyrir alla!
Motokross kl. 12
Enduro ca kl. 13.30 – hjálp óskast á laugardagsmorguninn að setja upp endurokrossþrautir á æfingasvæðinu!

Tjáið ykkur í kommentum og búum til smá stemningu! Þeir sem vilja hjálpa til eru meira en velkomnir :)

16 athugasemdir fyrir Vetrarskemmtikeppni á laugardaginn!

Færðu inn athugasemd