Bolaöldubraut í frábæru formi.

Brautin er í frábæru standi enda hafa veðurguðirnir og Garðar séð til þess að vökva og tæta upp brautina hressilega. Brautin var löguð með jarðýtu í síðustu viku og svo hefur Aron Berg, yfirmaður grjót og grashreinsistarfa, verið á fullu í því að snyrta bæði innan og utan brautar. Þeir félagar, Garðar og Aron, verða í grjóthreinsun fram eftir degi þannig að vinsamlegast farið varlega ef þið sjáið þess duglegu og hressu starfsmenn VÍK í brautinni.  Munið eftir miðunum Á HJÓLINU.

Brautarstjórn.

Ein hugrenning um “Bolaöldubraut í frábæru formi.”

  1. Á ekkert að gera meira við álfsnes, svolítið glatað að búa við hliðin á og eiga árskort og ekkert gert í brautini.
    Og hvað er málið með þessa opnunr tíma eins og veðrið sé ekki nógu erfitt.

Skildu eftir svar