Slóðar í Bolaöldum.

SLÓÐARNIR ERU LOKAÐIR!!!!!

Í kvöld verður vinnukvöld í Jósefsdal. Þar verða merktir upp slóðar þannig að hægt sé að taka vel á því í æfingum fyrir Klaustur. Óskað er eftir aðstoð við slóðalagningu. Vinna hefst kl 18:00. Verkið ætti ekki að taka langan tíma enda hljótum við að fá góða aðstoð frá félagsmönnum og öðrum áhugasömum.

Ef vel verður tekið á því, á vinnukvöldi, ætti að vera hægt að opna Jósefsdalinn um helgina. Vinnuþjarkar gefi sig fram við Garðar S: 866 8467, eða Dóra Sveins S: 896 4965, á staðnum.

Slóðanefndin.

3 hugrenningar um “Slóðar í Bolaöldum.”

  1. Í kvöld var vinnukvöld inní Jósepsdal svo hægt sé að fara opna einhverja slóða á svæðinu.
    Reyndar er ég eiginlega komin á þá skoðun að það sé engin þörf á að opna slóða í Bolaöldu þar sem það er engin áhugi hjá félagsmönnum að gera neitt til þess að það sé hægt.
    Í kvöld kom 1 hjólamaður til að vinna með okkur Garðari!!!
    Robert hjá rivus mætti og dró 3 félaga með sér sem eru ekki hjólamenn.

    Jú reyndar kom 1 annar þegar við vorum á leiðinni til baka um klukkan 21 en passaði sig á að stoppa ekki hjá okkur heldur laumaðist inní Jósepsdal, örugglega ekki til að vinna þar.

    Ef félagsmenn hafa ekki áhuga á að aðstoða við og við á svæðinu þá fækkar bara opnum slóðum og þeir opna seinna vegna þeirra fáu handa sem vinna verkið.
    Félagsmenn verða að fara vakna og vera með, þetta er svæðið okkar og getur verið frábært ef allir gera eitthvað, það þarf ekki að vera mikið því margar hendur vinna koma miklu í verk.
    Hugsið þetta kæru félagsmenn.

  2. já maður þarf klárlega að mæta á næsta vinnukvöld í slóðunum.
    en eru þá engir slóðar opnir þarna um helgina?

  3. Sæll Fannar.
    Þú ert velkomin á næsta vinnukvöld, það verður haldið fljótlega en varðandi opnun þá er stefnan að opna inní Jósepsdal um helgina en allt annað er ennþá lokað.

Skildu eftir svar