Sumarið (og Klaustur) á næsta leiti

Það er komið að því að greiða félagsgjaldið og styrkja félagið ykkar. Sumarið er rétt handan við hornið og félagið þarf þinn stuðning. Skráning í Klausturskeppnina hefst 10. mars og þá verða allir keppendur að hafa greitt félagsgjald í sitt félag.

Vorverkin í Bolaöldu og Álfsnesi hefjast von bráðar og það er margt sem okkur vantar til að geta staðið okkur í sumar. Félagið vantar m.a. dráttarvél og margt fleira sem nauðsynlegt er að útvega sem allra fyrst. Auk þess kostar það einfaldlega stórfé að byggja upp og reka aksturssvæðin og því þurfa sem flestir að leggja sitt af mörkum.

Félagið heldur úti tveimur svæðum og hjá því er starfsmaður í vinnu auk sumarstarfsmanns sem er kostnaðarsamt. Fjöldi manns vinnur líka sjálfboðastarf á vegum félagsins við að halda keppnir, byggja upp svæðið og tryggja rétt okkar á slóðum og vegum landsins.

Nánar um Vélhjólaíþróttaklúbbinn
• Vélhjólaíþróttaklúbburinn, VÍK, er hagsmunafélag allra þeirra sem keppa og ferðast á torfærumótorhjólum.
• Umhverfisnefnd VÍK vinnur að því að fræða menn um góða umgengni við náttúruna og aðra útivistarhópa.
• VÍK rekur tvö akstursvæði í nágrenni Reykjavíkur. Á Álfsnesi ofan við Mosfellsbæ eru tvær motocrossbrautir, annars vegar fyrir 85cc hjól og hins vegar stærri hjól.
• Á Bolaöldusvæðinu til móts við Litlu kaffistofuna er komin frábær aðstaða fyrir sportið. Þar eru byrjendabrautir, 85cc braut og motocrossbraut í fullri stærð. Auk þess hafa verið lagðir þar tugir kílómetra af krefjandi enduroslóðum. Þar er nú komin fjórhjólaleiga, klúbbhús með hreinlætisaðstöðu, háþrýstiþvottaaðstöðu, vökvunarkerfi í motocrossbrautina o.m.fl.

Félagsgjald VÍK er fljótt að borga sig!
Með því að greiða félagsgjaldið styður þú starf VÍK og færð að auki afsláttarkort sem veitir 5-30% afslátt hjá fjölda aðila. Nánari upplýsingar er að finna á www.motocross.is

Lægri brautargjöld – frí afnot af enduroslóða á Bolaöldusvæðinu
Félagsmenn VÍK greiða lægra gjald fyrir afnot af motocrossbrautunum í Álfsnesi og Bolaöldu. Félagsmenn í VÍK geta að auki keypt árskort á bestu kjörum í motocrossbrautirnar og eru nánari upplýsingar að finna á motocross.is Þú sparar þér því umtalsverða fjármuni með því að vera félagi í VÍK. Miðar í brautirnar fást á bensínstöðvum Olís og í Litlu kaffistofunni.

Borgaðu félagsgjaldið á vefnum – hér
Greiðsluseðlar verða sendir út á næstunni en einfaldast og ódýrast fyrir alla er að greiða félagsgjaldið í gegnum vefinn – NÚNA STRAX!

* Ath. ef félagsmaður er yngri en 18 ára fær forráðamaður greiðsluseðilinn á sínu nafni.

** Félagsgjald 2011 er 5.000 kr. en fjölskyldugjaldið er 9.000 kr. fyrir alla fjölskyldumeðlimi

Skildu eftir svar