Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Ástand brauta hjá VÍK.

Bolaöldubrautir: Stóra brautin og 85cc brautin voru lagaðar með ýtu í vikunni og eru mjög góðar.

Álfsnesbraut er í fínu standi, eina sem gæti verið er að sjálfvirka vökvunin hafi verið í of miklu mæli. En þá er það bara alvöru drullumall.

Góða skemmtun um helgina hvort sem þið keppið að Jaðri eða leikið ykkur í hringakstri.


Munið eftir tímatökusendunum!

Þeir sem þurfa að leigja sér tímatökusendi fyrir endurókeppnina á laugardaginn er beint á að gera það sem fyrst í Nítró, Bíldshöfða 9.

Ekki verður hægt að leigja sendi á staðnum!

Leiguverð er 5.000,- kr.


Bolaalda í Sjónvarpinu í kvöld

Púkinn og Snælandvideó bjóða upp á síðustu motocrosskeppni ársins í Sjónvarpinu í kvöld og endursýningu á laugardaginn.

Þetta er síðasta keppni sumarsins sem fram fór í Bolaöldu 21. ágúst.

Sjáið hverjir hampa titlunum þetta árið.


Frumsýning á KTM 350 SX-F

350

Nýja 350 hjólið frá KTM hefur ekki farið fram hjá neinum sem fylgist með framþróuninni í smíði mótorhjóla. Hjólið hefur vakið mikla athygli einna helst fyrir þær sakir að það er með 350cc vél í stað 450cc eins og þau hjól sem það er í samkeppni við. KTM hefur í sumar sannað að þetta hjól er alvöru hjól því Antonio Cairoli hefur nú þegar tryggt sér heimsmeistaratitilinn í MX-1 flokki þrátt fyrir að tvær umferðir eru eftir af keppnistímabilinu.

Hjólið, ásamt öðrum, verður frumsýnt í Versluninni MOTO, Rofabæ 7, á morgun fimmtudag klukkan 17-19.


VÍK. Brautarmál.

Álfsnesbraut er í flottu standi.

Bolaöldubrautir eru lokaðar í dag á meðan Tóti ýtukall fer yfir 85cc brautina og stóru brautina. Látum vita þegar verkið er búið.


Um 120 manns skráðir

Um 120 manns eru skráðir í Enduro Cross Country keppnina sem haldin verður á Jaðri á laugardaginn.
Gaman er að sjá mikla aukningu í B-flokkunum en 22 eru skráðir í “gamlingjaflokkin” B40+ og 34 í B-flokkinn. Einnig eru 17 lið skráð í tvímenningskeppnina sem hlýtur að vera met í Íslandsmóti.

Síða 8 af 8« Fyrsta...45678