|
Íslenska landsliðið í motocross sem fer á MXON í september vill koma á framfæri kæru þakklæti til VÍK og allra þeirra sem með einum eða öðrum hætti komu að framkvæmd styrktarmótsins í Álfsnesi um síðustu helgi. Mótið tókst í alla staði mjög vel, brautin frábær, veðrið gott og allir í góða skapinu. Alls aflaði mótið kr. 244.000 í styrk fyrir landsliðið, sem án efa á eftir að koma í góðar þarfir í því stóra verkefni sem framundan er.
Nú hefur landsliðið sett upp vefsvæði á Facebook, þar sem hægt er að fylgjast með gangi mála á undirbúningstímanum og einnig á meðan á ferðinni til Denver stendur. Slóðin er http://www.facebookcom/#!/mxon2010teamiceland Kveðja Stefán, landsliðseinvaldur Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Afrekskvennasjóð Íslandsbanka og ÍSÍ. Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum vegna septemberúthlutunar rennur út föstudaginn 17. september n.k. Nánari upplýsingar um sjóðinn og úthlutunarreglur er að finna hér. Lesa meira af Umsóknir óskast í Afrekskvennasjóð
Álfsnesbrautin er í flottu standi. Garðar er búinn að vera að vinna í henni í dag og einnig hefur ringt þar örlítið í dag. Muna eftir miðunum.
 Flottar aðstæður á Jaðri Lokaumferðin í Enduro CC fer fram næsta laugardag 4. september í landi Jaðars. Jaðar stendur við Hvítá sunnan við Gullfoss, besta leiðin er að fara þjóðveg 1 í gegnum Selfoss og fara upp að Flúðum, haldið er áfram í gegn um Flúðir (beygt til hægri við Samkaup). Þetta eru ca. 18km frá Flúðum þar sem beygt er að Jaðri. Keppnisbrautin er ca. 12km. á lengd og voru um 20 manns að gera hana klára á laugardaginn, ein brekka sem var nokkuð erfið vegna grjóts var tekin og grjóthreinsuð og er nú eins og golfvöllur, önnur brekka sem keyrð var niður, nökkuð brött var einnig tekin vel í gegn og er brautin núna orðin öllum hjólum vel fær. Keppnisbrautin saman stendur af hestaslóðum, móum, kjarrivöxnum túnum og túnum. Um er að ræða skemmtilega keyrslubraut sem flestum ætti að líka. Pittsvæðið er á stóru túni og þar ætti að fara vel um alla. Skráningarfrestur rennur út á miðnætti á morgun þriðjudaginn 31. ágúst á www.msisport.is Öllum keppendum stendur til boða að fara skoðunarhring á laugardagsmorgun. Þeir keppendur sem vilja nýta sér þetta þurfa að mæta í skoðun fyrr en auglýst dagskrá segir til um, skoðun fyrir þá sem vilja taka skoðunarhring hefst kl. 9:30. Skoðunarhringur verður farinn kl: 10:30 Spáinn fyrir laugardaginn er frábær, 17 stiga hiti og léttskýjað, keppnisflokkar eru fyrir alla, 85cc, kvenna, +40, b flokkur, tvímenningsflokkur og meistaraflokkur. Lesa meira af Enduro CC 3.umferð á Jaðri
Krakkar hafið þið áhuga á að taka þátt í sýningarakstri ? Laugardaginn 4 sept kl. 15.00 verðum við með sýningarakstur barna 12 ára og yngri á vélhjólum og fjórhjólum fyrir neðan SBK húsið á malarsvæðinu hjá smábátahöfninni í Keflavík. Mæting kl. 14.30. Þetta er liður í kynningu á sportinu og höfum við verið með síðustu 3 ár og tekist mjög vel. Nú er um að gera að vera með og skrá sig. Skráning hafin á rm250cc@simnet.is og erlavalli@hotmail.com og lýkur á fimmtudag á miðnætti. Kveðja Púkadeild VÍR
Það varð enginn fyrir vonbrigðum sem mættu í keppnina í Álfsnesi í dag. Sól, nánast logn og brautin í frábæru standi. Garðar var búinn að keyra yfir 100 þús. lítra af sjó og vatni í brautina og tók síðustu keyrslu eldsnemma í morgun. Brautin gat því tæplega verið betri. Yfir 60 keppendur voru skráðir til keppni í nokkrum flokkum, Heiðursmannaflokkurinn var nýjung og gaman að sjá nokkra spræka á besta aldri taka þátt þar. Keyrð voru tvö moto í hverjum flokki og allt gert til að jafna bilið á milli keppenda. Lesa meira af Frábær MXoN styrktarkeppni í Álfsnesi í dag Síða 1 af 912345...»Síðasta » | |