Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Sherco akademían

Þar sem Trial tímabilið er komið á fullt í Evrópu setti Sherco saman akademíu La Seu d´Urgell á Spáni sem þátt í verkefni sínu við að aðstoða unga ökumenn. Innan verkefnisins er einnig fjárhagslegur stuðningur, ráðgjöf og þjálfunardagar undir leiðsögn Lluis Gallach, sem er fyrrverandi Spánar meistari í Trial og er í dag hægri hönd Albert Cabestany sem er meðal hæfustu Trial ökumanna í dag.


Bolaalda 13.07.2010

Ég átti leið upp á Bolaöldusvæðið í gær. Á tímabili ringdi eins og hellt væri úr fötu og jafnvel gott betur en það. Fram að hádegi var brautin skrauf þur en kl 15.00 var hún ófær vegna bleytu. Garðar rauk af stað með traktorinn til að reyna að ræsta út stærstu pollana. Einnig fékk Gaðrar svakalegt sjónarspil þar sem elding og þruma komu svo til samtímis og traktorinn hristist vel. Og takið eftir á myndunum, það var kominn snjór í hlíðarnar í kring.

Gera má ráð fyrir því að brautin sé með frábært rakastig í dag. Garðar er búinn að vera lagfæra uppstökk og lendingar verður bara “gaman saman” í brautinni. Lesa meira af Bolaalda 13.07.2010


Bikarmótið í Sólbrekku

Á verðlaunapalli í MXopen

Bikarmótsdagurinn 10. júlí rann upp þokkalega bjartur eftir rigningu þá um nóttina. Brautin var hæfilega blaut og aðstæður í Sólbrekku hinar bestu þegar keppendur streymdu á svæðið einn af öðrum og komu sér fyrir.

Þátttakan var minni en búist hafði verið við og var ákveðið að keyra saman 3 og 3 flokka og gekk það vel.

Virkilega spennandi og gaman var að fylgjast með keppninni og sýndu margir mjög góða takta.

Aron Ómarsson varð fyrir því óhappi að afturfelgan gaf sig í fyrra motoinu og frambremsurnar í því seinna – sannarlega óvænt. Úrslitin komu því á óvart í sumum flokkum og mátti sjá ný andlit á palli í bland við önnur kunnugleg.

Lesa meira af Bikarmótið í Sólbrekku


Kerra í óskilum

Vefurinn fékk ábendingu um kerru í óskilum. Hún er á Kirkjubæjarklaustri á bílastæðinu við skólann.

Ólíklegt þykir  að eigandi kerrunnar hafi skilið hana eftir þarna en í henni eru meðal annars hjólaskór og strappar eins og sést á myndunum hér að neðan

Lesa meira af Kerra í óskilum


Heimboð KKA um verslunarmannahelgina

kkalogo.pngKKA býður hjólafólki að eiga góða hjólahelgi um verslunarmannahelgina á Akureyri.  KKA mun eftir fremsta megni reyna að gera þessa helgi skemmtilega fyrir þá sem vilja koma og eiga góða helgi á aksturssvæði KKA. Motocrossbrautin mun verða í toppformi svo og endurosvæðið.

Ekki er búið að teikna endanlega dagskrá en hún fer m.a. eftir veðri og þátttöku.

En hugsanlegir viðburðir eru:

  • Hardenduro sýningin klofinn mótor. (keppni)
  • Endurotúr í nágrenni Akureyrar (2-3 tímar)
  • Hjólatorfærukeppnin gamla góða.
  • Motocross æfingar alla helgina.
  • Kynning á sportinu fyrir byrjendur. Umhirða hjóla, búnaður o.fl.

Lesa meira af Heimboð KKA um verslunarmannahelgina


Skemmtikeppni Hjartar – Bestu millitímar

Bestu Millitímar

Rásnr og nafnBesti millitími
110-Eythor og Konrad 10:33.18
29-Atli Mar og Kari 10:44.28
320-Gunnar Sig og Borkur 10:43.56
44-Dadi skadi og Hilmar 10:53.01
57-Haukur #10 og Vidir 11:04.98
618-Gardar Atli og Josef 11:06.85
713-Stefan G og Simon 11:15.31
88-Gunnar Solva og Gudn 11:16.57
911-Hjortur P og Kristin 11:20.30
1015-Elmar og Sigridur Ga 11:43.22
113-Agust B og Olafur G 11:47.33
1217-Eirikur Runar og Thr 11:51.07
136-Gretar Solva og Ludv 12:05.62
1419-Petur og Sveinn St 12:37.86
1512-Guggi og Eirikur G 12:39.01
1614-Kristjan S og Olafur 12:39.67
1716-Trausti og Asdis Olg 12:57.80
181-Hilmir og Tedda 13:02.69
1921-Olafur Thor og Krist 13:12.30
205-Thordur A og Sigurst 13:23.78
212-Bjarki Larusson 14:45.73
Síða 5 af 10« Fyrsta...34567...Síðasta »