Loksins langtímasamningur um Sólbrekkubraut

Guðlaugur H. Sigurjónsson og Ásgrímur Pálsson við undirritun samningsins

Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti þann 22.júlí s.l. samning við Vélhjólaíþróttafélag Reykjaness um leyfi til tímabundinna afnota á Sólbrekkusvæðinu auk stækkunar. Samningurinn gildir til 31.maí 2017 með möguleika á framlengingu.

Samningurinn er sannkallaður tímamótasamningur fyrir VÍR því í mörg ár hefur brautin verið á skammtímaleyfum. Uppbygging á aðstöðunni við brautina mun eflaust taka kipp eins og menn hafa séð byrja í sumar enda hefur VÍR marga öfluga liðsmenn innanborðs.

6 hugrenningar um “Loksins langtímasamningur um Sólbrekkubraut”

  1. Við ættlum að taka þetta bara skref fyrir skref og vökvun er mjög ofarlega á lista yfir það sem þarf að gera 🙂

Skildu eftir svar