Vegna kæru frá landeigendum í Borgarfirði verður motocrossið á Unglingalandsmóti UMFÍ fært frá nýrri braut í Borgarnesi til Akraness.
Þrátt fyrir stuttan fyrirvara hafa menn og konur á Akranesi brett upp ermar og gert Akrabrautina klára fyrir keppnina á mettíma. Rúmlega 30 ungmenni eru skráð til leiks og án nokkurs vafa verður mikið stuð á Skaganum á sunnudaginn.
Keppnin hefst á sunnudaginn klukkan 12 og hvetjum við alla til að koma við í Akrabraut og sjá okkar björtustu vonir keppa á landsmótinu.
Hér fyrir neðan má sjá dagskrána í heild:





ð klukkan 18:00 í kvöld. Æfingin fer fram í Bolöldu og verða báðir hóparnir keyrðir saman í litlu 85 brautinni. Gunnlaugur & Helgi Már verða fjarverandi í kvöld en verða mættir aftur á Miðvikudagskvöldið. Arnar Ingi Guðbjartsson mun hoppa inn og þjálfa fyrir þá í kvöld. Arnar Ingi er frábær þjálfari sem hefur leyst af í þjálfun fyrir Vélhjólaíþróttaskóla VÍK ásamt því að hafa tekið að sér einkakennslur hjá félaginu.