Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Akureyringar og nærsveitungar athugið

Á morgun fer fram önnur umferðin í Íslandsmótinu í Enduro. Við mælum með að eyða þessum annars frábæra degi í að fylgjast með keppninni sem fer fram á svæði KKA í Hlíðarfjalli.

B-flokkur hefur keppni klukkan 12 og Meistaraflokkur klukkan 13.45 og lýkur keppni um klukkan 16.30


MotoMos, takk fyrir daginn :)

Afmælisdagur MotoMos heppnaðist frábærlega í dag,  viljum við þakka öllum sem lögðu á sig endalausa vinnu síðustu daga ;-)
Snorri, eigum við að ræða þetta eitthvað ???    GEÐVEIKT :)


MotoMos 2 ára afmæli.

Jæja þá er brautin okkar í MotoMos orðin 2 ára, og í tilefni dagsins ætlum við að vera með smá húllumhæ á morgun 17. júní kl 13.
Eysteinn ýtusnillingur verður búinn að taka brautina í gegn:)   Balli er búinn að vera vinna í  braut fyrir yngstu snillingana, 65cc-85cc.   Einnig erum við að vígja húsið okkar og ætlum að bjóða upp á grillaðar pylsur, gos og kaffi.  Munið bara eftir miðum á N1 í Mosó :)   Sjáumst hress.


Ágætis skráning í endúró á Akureyri

Önnur umferðin í Enduro Cross Country Íslandsmótinu fer fram á Akureyri á laugardaginn. Ágætis skráning er í mótið og eru alls tæplega 100 skráðir til leiks í 7 flokkum. Spáð er hitabyljgu á Norðurlandi á laugardaginn og Akureyringar hafa lofað braut með góðu flæði þannig að allt stefnir í frábært mót. Þeir sem eru fyrir norðan ættu að fylgjast með upplýsingum um vinnukvöld á kka.is

Hér er listi yfir alla skráða.


Álfsnesbraut opnar

Álfsnesbrautin opnar á morgun, miðvikudag, kl: 17.00. Eftir flottar lagfæringar.

Áður en hleypt verður í brautina er skilyrði að allir labbi einn hring í brautinni og hreinsi sjáanlega steina. Nú eða skipuleggja sig vel og allir taki einn kafla. Muna eftir miðum – árskortum á hjólunum. Enginn miði – árskort = brottvísun úr brautum VÍK. Miðar fást í N1 Mosó.

Brautarnefnd.


Frábær stelpuendúróferð afstaðin

Stelpurnar ásamt aðstoðarmönnum

27 stelpur skelltu sér í stelpuenduro sunnudaginn 13. júní í boði Blue Mountain og Moto.
Það rigndi eldi og brennisteini snemma um morguninn en komið var blíðskaparveður þegar hópurinn var klár og hélst það út daginn. Það var Haukur #10 sem tók að sér að leiðbeina stúlkunum áður en farið var af stað og voru þær að sjálfsögðu sáttar með það.
Hópurinn skiptist í 2 hópa, lengra komnar og styttra, en öllum gekk ótrúlega vel. 3 karlmenn voru fengnir til að aðstoða hópinn en það voru Haukur, Arnór og Ásgeir í Aukaraf. Þeir stóðu sig með prýði og fá miklar þakkir fyrir.
Kalli og Helga í Moto tóku síðan á móti hópnum eftir rúmlega 2 tíma keyrslu, með frábærum veitingum, grilluðu pylsur, kjúklingaleggi ofl. Takk fyrir það!! Hluti hópsins hafði ekki fengið nóg af hjólamennsku og skellti sér í smá brölt eftir veitingarnar.

Lesa meira af Frábær stelpuendúróferð afstaðin

Síða 5 af 11« Fyrsta...34567...Síðasta »