Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Grein í útlöndum !!

Direct Motocross er kanadískt motocross blað, og eru einnig með vinsæla heimasíðu í anda og samstarfi við Racer X.  Dawn McClintock er blaðamaður, besta vinkona Jolene Van Vugt úr Nitro Circus, hún hafði sambandi við mig og vildi taka viðtal við mig og gera smá grein um Motocross á Íslandi í leiðinni. Endilega kíkið á fyrsta viðtalið við mig í erlendum miðli :D

Smellið á linkin hér til að sjá viðtalið

Smellið hér til að skoða Direct Motocross


KlaustursPunktar – Skoðunartími

Skoðun hjóla verður samkvæmt eftirfarandi:

Laugardagur:  Opið frá kl. 14:00  til   kl. 18:00
Sunnudagur:  Opið frá kl. 9:00  til   kl. 10:30  (síðasti séns fyrir þá sem alls ekki komast á laugardeginum)

Þeir sem taka þátt í unglinga- og kvennakeppninni á laugardeginum, þurfa að koma með hjólin til skoðunar á milli kl. 15:00  og  16.00


KlaustursPunktar – (Hel)Víti

Eins og áður, verða keppendur hnepptir í  ’Víti‘  fari þeir ekki eftir settum reglum.
Brautargæslumenn verða um alla braut og fylgjast með framgangi mála.  Þeir tilkynna brot og aðra hluti til keppnistjórnar í gegnum talstöðvar.  Keppnisstjórn hneppir svo óþekka keppendur í “Vítis-varðhald” eins og tilefni er til.
Lesa meira af KlaustursPunktar – (Hel)Víti


KlaustursPunktar – Merking hjóls og keppanda

Öll hjól skulu vera merkt réttu keppnisnúmeri.
Keppendur skulu vera með hjól tryggilega merkt á hliðarspjöldum þegar þau koma til skoðunar.  Í skráningu fá keppendur númer sem þeir þurfa að líma á framplötuna.  Ef þeir hafa merkt sjálfir framplötuna þurfa þeir í það minnsta  að líma merki keppninnar á framplötuna.
Keppnistreyjur mega ekki vera með annað númer en er gildandi í keppninni!


Uppfærður keppendalisti fyrir Klaustur

Einhverjar smávægilegar breytingar hafa orðið á keppendalistanum og hér er birtur uppfærðu keppandalisti. Enn eru einhverjir möguleikar á að menn detti út, þannig að þeir sem eru 10 efstu á biðlistanum mega senda símanúmer á vik@motocross.is ef þeir vilja láta ná í sig með hraði.

Keppendalistinn


KlaustursPunktar – Takmörkun umferðar

Hafið endilega í huga að öll umferð vélknúinna farartækja, annarra en keppenda og merktra starfsmanna, er stranglega bönnuð bæði laugar- og sunnudag.
Á laugardeginum er einnig takmörkun á akstri keppenda.  M.a. er ætlast til þess að hjól séu færð til skoðunar með DAUÐAN MÓTOR..!
Á keppnisdegi eru keppendur beðnir um að virða skilti þar sem ætlast er til þess að keyrt sé í fyrsta gír.  Þetta á við t.d. við skiptisvæðið og innan þjónustusvæðis.

Fyrirfram þakkir fyrir vinsamlegar móttökur  :-)

Síða 5 af 14« Fyrsta...34567...Síðasta »