7 dagar í Íslandsmótið

1. umferð Íslandsmótsins í Enduro Cross-Country fer fram laugardaginn 8. maí í Jósepsdal. Jósepsdalur er við Bolaöldu, akstursíþróttasvæði VÍK sem flestum er kunnugt um. Ekki hefur verið haldin keppni áður í Jósepsdalnum en svæðið bíður upp á mjög skemmtilega braut og verður B brautin létt og fær öllum keppendum á 85cc – 650cc hjólum. A brautin verður sú sama og B brautin en það verða smávægilegar viðbætur með heldur meira krefjandi þrautum.

Íslandsmótið í Enduro tekur breytingum frá fyrri árum en lagt verður upp með brauti sem verða ekki með ílla færum torfærum líkt og hefur tíðkast síðustu ár og keppnishaldið færist meira í átt að svokölluðu Cross-Country. Í sumar verða 3 umferðir til Íslandsmeistara og helsta breytingin er sú að aðeins verður ekin ein umferð á keppnisdag. Meistarflokkur og Tvímenningur aka í 2,5 klst. (150 mín) en Baldursdeild ekur í 85 mín. B brautirnar verða öllum keppendum færar og verður vonandi að við sjáum keppendur á 85cc hjólum og konurnar mæta þar sem brautirnar eiga að vera vel færar. Skráning mun hefjast á laugardaginn og standa til miðnættis á miðvikudaginn 5. maí.

Keppndum er bentá að skrá sig tímanlega og þeir sem eiga eftir að fá keppnisnúmer þurfa að byrja skráningarferlið ekki síðar en mánudaginn 3. maí.

Uppfærðar reglur MSÍ um Íslandsmótið í Enduro Cross-Country verða birtar á msisport.is um helgina ásamt keppnisdagskrá.

Stjórn MSÍ

Skildu eftir svar