• Forsíða
  • Spjall
  • Smáauglýsingar
  • Félögin
    • VÍK
      • Lög VÍK
      • Stjórn VÍK
      • Afsláttur
    • MotoMos
    • Tengiliðir
  • Að hjóla
    • Hvar má keyra?
    • Gættu að landinu
    • Þjálfun
    • Keppnisdagatal
    • Úrslit úr keppnum
    • Öryggi þitt
    • Brautir
      • Bolaalda
      • Álfsnes
      • MotoMos
      • Sólbrekkubraut
      • Þorlákshöfn
      • Akrabraut
      • Akureyri
      • Selfoss
  • Tenglar
    • Senda inn tengil
    • Íslandsmeistarar
  • Vefalbúm
  • Félagakerfi
    • Félagakerfi VÍK
      • Fjölskylduskráning í VÍK
    • MotoMos Félagsskráning
    • Félagakerfid
  • Um vefinn
    • Auglýsingar
    • Fréttaskot
    • Kennsla í notkun síðunnar
    • About the site in English
    • Gamlar fréttir
  • Námskeið VÍK

Muna að skrá sig í Motocrossið

Vefstjóri | 30. maí, 2010 | 15:07

msi_stort.jpgFyrsta umferðin í Íslandsmótinu í Motocrossi fer fram á laugardaginn á Ólafsfirði. Nú er skráningin komin á fullt á MSIsport.is.

Ekki klikka á því að skrá þig! Skráningu lýkur á þriðjudagskvöld.

Athugasemdir:
2 stk »
Flokkar
Fréttir, Keppnir, MSÍ, Motocross

Motoveðurfréttir

Vefstjóri | 29. maí, 2010 | 15:54

Við hjá motocross.is erum að taka í notkun þessa daga nýjan hugbúnað þar sem við birtum veðurfréttir af sjálfvirkum veðurathugunarstöðvum Veðurstofu Íslands. Veðrið verður birt fyrir þá veðurathugunarstöð sem er næst öllum helstu motocrossbrautum landsins. Til dæmis verður veðrið á Sandskeiði birt fyrir Bolaöldu.

Veðurstofan uppfærir veðrið á heila tímanum og gerist það sjálfkrafa hér hjá okkur í leiðinni. Aðeins mannaðar veðurathugunarstöðvar sýna myndrænt hvernig veðrið er, þ.e. með mynd af sólinni eða álíka.

Hér er sýnishorn fyrir Álfsnes þar sem veðurathugunin er á Geldinganesi, en annars er hægt að sjá veðrið við allar brautirnar sem eru í valmyndinni hér fyrir ofan í /að hjóla/brautir/

Taktu þátt í umræðum í þessu spjalli

Athugasemdir:
0 »
Flokkar
Endúró, Fréttir, MotoMos, Ástand brauta

Ávallt á vegi – Aðgerðir gegn akstri utan vega

Vefstjóri | 27. maí, 2010 | 13:27

Fréttatilkynning á vef Umhverfisráðuneytis:

Akstur utan vega virðist vera vaxandi vandamál á Íslandi. Margbrotin náttúra Íslands, sem er lítt snortin miðað við mörg þéttbýlli ríki, er eitt helsta aðdráttarafl þeirra sem ferðast um landið. Landið er víða viðkvæmt fyrir ágangi og gáleysislegur akstur getur valdið skemmdum á náttúrunni sem eru ár eða jafnvel áratugi að jafna sig.

Umhverfisráðuneytið hefur unnið aðgerðaráætlun gegn akstri utan vega til þriggja ára, undir heitinu Ávallt á vegi.

Utanvegaakstur er náttúruverndarmál. Skemmdir á landinu eyðileggja upplifun okkar af náttúrunni og rýra framtíðarmöguleika okkar á nýtingu landsins t.d. í ferðaþjónustu. Markmið átaksins er að draga úr náttúruspjöllum af völdum utanvegaakstri. Lagt verður í aukna vinnu á næstu árum til að sporna gegn akstri utan vega, m.a. með eftirfarandi aðgerðum:

·         Lagaramminn verður endurskoðaður og gerður skýrari

·         Merking leiða utan hins hefðbundna vegakerfis verður bætt

·         Ráðist verður í lagfæringar á skemmdum

·         Löglegir vegir verða rétt skráðir á opinberum kortagrunnum, sem auðvelt verður
að nálgast

·         Unnið verður að lokun ósamþykktra slóða

·         Leitað verður leiða til að bæta aðstöðu fyrir vélhjólafólk og akstursíþróttir

·         Eftirlit verður hert, sérstaklega á viðkvæmum svæðum

·         Átak verður gert í fræðslu, m.a. fyrir unga ökumenn og ferðamenn

·         Unnið verður með ferðaþjónustu og útivistarhópum til að skapa aukna sátt um
umferð útivistarfólks

Töluvert er um skemmdir í nágrenni höfuðborgarinnar s.s. á Reykjanesskaganum og á  Hengilsvæðinu. Að Fjallabaki, á Snæfellsnesi, Héraðssandi og víðar eru svæði þar sem slæm för eftir utanvegaakstur sjást og  þarfnast lagfæringar. Vandinn nær einnig til viðkvæmra svæða sem fáir sækja heim og í fyrra var t.d. akstur utan vega stöðvaður í Þjórsárverum.

Lagaramminn virðist ekki vera nægilega skýr. Í málum þar sem ákært hefur verið vegna utanvegaaksturs hafa dómstólar stundum talið ákvæði laga of óljós til sakfellingar. Refsingar eru of vægar að mati margra og virðast ekki hindra ítrekuð brot.

Landskemmdir vegna utanvegaaksturs eyðileggja upplifun ferðamanna og geta skert möguleika ferðaþjónustunnar. Ráðist verður í átak í lagfæringum á landskemmdum og hefst það á þessu ári.

Ferðamenn telja sig ekki alltaf örugga um að vera á löglegum vegi vegna skorts á merkingum og ónákvæmum kortum. Ábendingar um kort og kortagrunna sem innihalda villandi upplýsingar um vegi og slóða berast reglulega. Aðeins lítill hluti vega og slóða á hálendinu eru stikaðir.

Beina þarf fræðslu til sem flestra hópa. Vinna þarf fræðsluefni fyrir markhópa svo sem erlenda ferðamenn, ökunema, grunn- og framhaldsskólanema, félög jeppa- og vélhjólamanna, veiðimenn ofl. Samráðshópur um fræðslumál hefur starfað undanfarin misseri og m.a. gefið út bæklinga og fræðsluefni sem dreift er í bílaleigubíla. Skilti með upplýsingum um áhrif aksturs utan vega hafa verið sett upp þar sem ekið er inn á miðhálendið.

Auka þarf eftirlit með utanvegaakstri. Efla þarf skráningu tilvika til að glöggva sig frekar á umfangi vandans og hvernig miðar í viðleitni til úrbóta. Auka þarf fræðslu fyrir eftirlitsaðila s.s. lögreglu og landverði. Samræma þarf viðbrögð landvarða og lögreglu við brotum. Sérstaklega verður hugað að friðlýstum svæðum í því sambandi.

Bæta þarf aðstöðu vélhjólafólks til ferðalaga og akstursíþrótta og greina þarfir þeirra til að stunda sína útivist. Umhverfisstofnun og Landgræðsla geta veitt sveitarstjórnum ráðgjöf um hentug svæði fyrir akstursíþróttir. Þarfir útivistarhópa, s.s. göngufólks, hestamanna, vélhjólamanna og jeppamanna eru oft ólíkar og þarf að vinna með slíkum hópum og aðilum í ferðaþjónustu til að skapa aukna sátt um ferðaleiðir og útivist í anda náttúruverndar.

Ávallt á vegi – aðgerðaráætlun gegn akstri utan vega (pdf skjal)

Athugasemdir:
5 stk »
Flokkar
Endúró

Endúró Slóðar í Bolaöldum

Stjórn VÍK | | 12:09

Nú eru slóðakerfið á Bolaöldusvæðinu að detta í nothæft ástand. Það er vinnukvöld í kvöld kl 18:00. 

Þeir sem mæta hafa að sjálfsögðu forgang í að hjóla í slóðakerfinu í kvöld.

Hinir sem ekki mæta á vinnukvöld!!! Þið getið ekki hjólað fyrr en á morgun, föstudag.

Hvetjum alla alvöru slóðaökumenn til að mæta í kvöld og aðstoða við að gera slóðakerfið betra.

ATH slóðakerfið er ekki í sama ástandi og það var sl haust. Farið með varúð fyrsta hringinn til að kanna aðstæður.

Athugasemdir:
0 »
Flokkar
Endúró, Fréttir, Félagsstarf

Langisandur Beach Race 12 Júni.

Oli Gisla | 26. maí, 2010 | 23:05

VÍFA hefur ákveðið að Langasandskepnin verði haldin 12. Júní. Ástæður fyrir því hversu snemma Beach Racið er þetta árið mun vera sú að flóð og fjara er óhagstæð í haust.

VÍFA biður alla vinningshafa frá því í fyrra að skila inn bikurum til Magga í Nítró. Gott væri ef það kláraðist innnan viku.

Nánari upplýsingar um keppnina koma bráðlega.

Athugasemdir:
0 »
Flokkar
Aðsendar greinar, Fréttir, Keppnir

Kveðjur frá Ásgarði

EiS | | 19:50

Stjórn VÍK var beðin um að skila góðum kveðjum og þakklæti til keppenda og aðstandenda þeirra, fyrir skemmtilega helgi.
Að sögn fannst landeigendum umgengni hafa verið til fyrirmyndar og því tilhlökkunarefni að halda næstu Klausturskeppni að ári!

Stjórn VÍK vill taka undir þetta.  Þó svo að ýmislegt hafi mátt fara betur í sjálfri keppninni, þá var mjög ánægjulegt að sjá hve vel tókst til við allar aðgerðir á þjónustusvæði, við skráningu og síðast en ekki síst var það ánægjulegt að menn virtu hið nauðsynlega “Dauður Mótor” nánast án undantekninga.

Athugasemdir:
3 stk »
Flokkar
Fréttir, Keppnir, Klaustur
Tags
Klaustur

Sigurvegarar í viðbótarflokkum

EiS | | 16:15

Í Klausturskeppninni taka flestir þátt í tvímenningnum og einnig eru veitt verðlaun fyrir þrímenning.
Mikil spenna er hins vegar á hverju ári fyrir “Járnkarlinum” sem er flokkur þeirra sem keppa einir.
Einnig er keppt í nokkrum viðbótarflokkum – nefnilega:
Afkvæmaflokki og   Oldboys/girls-flokki (+90) ásamt svo Kvennaflokki.
Í kvennaflokki var svo ein “Járnfrú”.   Það verða vonandi að fleiri konur sem feta í fótspor Karenar Arnardóttur að ári, sem kláraði 12 hringi ein síns liðs.

Í Afkvæmaflokki voru efst þessi:
(ATH.  Hér voru röng úrslit gefin upp í upphafi.  Þau hafa verið leiðrétt og eru viðkomandi beðnir afsökunar á því.)

1 sæti:  Haukur Þorsteinsson og  Aníta Hauksdóttir
2 sæti:  Guðbjartur Stefánsson  og  Arnar Ingi Guðbjartsson
3 sæti:   Andrés Hinriksson  og  Gylfi Andrésson

Í Oldboys/girl-flokki voru þessir efstir:

1 sæti:  Stefán Gunnarsson  og  Kristján Steingrímsson
2 sæti:  Reynir Jónsson  og  Þorvarður Björgólfsson
3 sæti:  Grétar Sölvason  og  Árni Stefánsson

Við óskum þessum afbragðs keyrurum til hamingju með árangurinn.
Verðlaunaafhending í viðbótarflokkum (1, 2 og 3 sæti) verður auglýst síðar.
Vonandi sjáum við þessa flokka stækka á næstu árum.  Þeir eru nefnilega eitt af mörgu sem  gefur  þessari frábæru keppni lit.

Lesa meira »

Flokkar
35+, Endúró, Fréttir, Keppnir, Klaustur
Tags
Klaustur

Innskráning



  • Nýskráning
  • Týnt lykilorð?

Nýlegar athugasemdir

  • theDude
    Já, þetta verður spennandi að sjá....
  • aron berg
    Að sigra Evrópu er ekki nóg...
  • NoBrks
    Já heldur betur flottur þáttur og...
  • ingokr
    Sammála, flottur þáttur.
  • Ingvi19
    Töff mynd.
  • Jónsi
    Flott sjónvarp. mér langar í svona í...
  • Keli
    Tímarnir eru komnir núna á Mylaps....
  • theDude
    70 manns komnir, við hljótum að ná...

Flokkar

  • 35+
  • Aðsendar greinar
  • Ástand brauta
  • Dakar
  • Endúró
  • Events
  • Félagsstarf
  • Fjórhjól
  • Freestyle
  • Fréttir
  • Heyrst hefur að ….
  • Íscross
  • Keppnir
  • Klaustur
  • Krakkar
  • Motocross
  • MotoMos
  • MSÍ
  • MXoN
  • MXTV
  • Netviðtalið
  • Skemmtiefni
  • Slóðar
  • Stelpur
  • Supercross
  • Supermoto
  • T&T
  • Tips og Trix
  • Trial
  • Umhverfismál
  • Unglingar
  • Úrslit
  • Útlönd
  • Vefverslun

Stikkorð

Þorlákshöfn álfsnes úrslit þjálfun Akureyri bikarar Bolaalda Bryndís Chad Reed dagatal Endúró Endurocross Hella Horn í horn hornafjörður Iceland Jólagjöfin í ár Keppnir Keppnis Klaustur krókurinn kreppukeppni Líklegur LEX Games Mývatn miðnæturenduro midnight Motocross MotoMos MSÍ MXoN MXTV Myndir OffRoad Race Sólbrekka Signý SixDays Skráning Stolið hjól Unglingalandsmót usa VÍR vestmannaeyjar X games

Nýlegt spjall

  • Langur Fimmtudagur

    af BB

  • Breyttu seríalnúmerinu

    af aron berg

  • 125cc hjól í Bolöldu

    af aron berg

  • Nýja heimsmeistarahjólið KTM 350 SX-F frumsýnt

    af admin

Nýjar smáauglýsingar

  • Honda Crf 250 2007

    Er með hjól alveg í 100% standi, ekið um 20 t...
    [Read more]

  • Honda-Crf-250-2007

    Honda Crf 250 2007

    Er með hjól alveg í 100% standi, ekið um 20 t...
    [Read more]

  • WR-450 árg 2004 Skipti á bíl

    Er með til sölu gott eintak af Yamaha WR-450 ár...
    [Read more]

Ástand brauta

  • Ástand brauta hjá VÍK.
  • VÍK. Brautarmál.
  • Álfsnesbraut

Heyrst hefur að...

  • að það verði bikarkeppni í Álfsnesbraut 29. Ágúst.
  • að afrakstur kepninnar renni til MXON faranna okkar.
  • Framtíðarmótorhjól sem krassar ekki – Video

Enduro.is

  • Myndir frá Jaðri
  • Smá endúró bull fyrir þá sem sakna mýrarinnar á Klaustri.
  • Kári Jónsson Íslandsmeistari í Enduro 2010

Trial.is

  • Barna-rafmagns-trial hjól komin til landsins
  • Endurocross um Verslunarmannahelgina á útihátíðini Neistaflugi

Leit

Síða 1 af 1112345678910»...Síðasta »
OPEX 134 queries. 0,711 seconds