Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Bolaöldubraut Laugardaginn 24 Apríl

Bolaöldubrautin er opin í dag. Hitastigið kl 9 í morgun var um 3 gráður í +. Það var sáralítið næturfrost og brautin ætti að vera orðin góð um hádegi. Háþrýstidælan verður opin til kl 16:00 eða á meðan Garðar er á svæðinu. Minnum alla á að kaupa sér miða í brautina í Olís v/ Norðlingaholti eða í Litlu Kaffistofunni.

Endúró slóðarnir eru LOKAÐIR. En einhverjir telja sig ekki þurfa að fara eftir því og hafa verið að spæna upp slóðana. Og með því framferði er verið að skemma. Það er verið að skemma þá þannig að við þurfum að öllum líkindum að LOKA einhverjum af þeim í allt sumar. ATH við erum ekki að LOKA bara af því. Það er lokað að því að jarðvegurinn þolir ekki akstur ennþá. Það myndast djúp för eftir hjólin sem jafna sig jafnvel aldrei.

EINUNGIS 1 % ÖKUMANNA FARA EKKI EFTIR SETTUM REGLUM. EKKI HALDA ÁFRAM AÐ SKEMMA FYRIR ÖLLUM HINUM.

Bolaöldunefndin.


Akrabraut, Akranesi.

Akrabraut opnar
Ákveðið hefur verið að hafa brautina opna nú um helgina, það er laug 24 og sunn 25 apríl. Nýji kaflinn er óökufær sökum bleytu og þar með lokaður og biðjum við fólk að virða það. Miðar eru seldir í Olís beint á móti Tjaldsvæðinu okkar  Góða skemmtun og farið varlega.

www.vifa.is


icemoto.is

Aron hjá Icemoto.is hefur opnað síðuna að nýju, með nýju útliti og fídusum. Öflug fréttasíða sem vert er að kíkja á. Rakst einmitt á gamla mynd af mér þar inná síða 2008 úr MotoMos. Þarna er ég að hjóla í fyrsta skipti efti ökklabrot. Þeir voru búnir að setja nýjan rythma kafla í brautina sem menn áttu í erfiðleikum með, og á meðfylgjandi með er ég að reyna að “tripla” síðasta kaflan í wúpsunum. Ef þið horfið vel á lapirnar á mér, að þá er ég í nýjum Tech8 á hægri löppinni, en þurfti að vera í gömlum slitnum Gaerne hinum megin, og hafa smellurnar lausar því ég gat ekki lokað skónnum vegna þess að ökklin var svo bólgin. Þarna var maður ungur og vitlaus. Ekki taka þetta til fyrirmyndar :)

 


Keppnis Einkaþjálfun

Ég hef ákveðið að halda áfram með einkaþjálfun í Motocross í sumar, en einungis eru laust pláss fyrir 4 einstaklinga.  Þetta varða tveir hópar, og í hverjum hóp verða tveir einstaklingar sem munu alltaf æfa saman. Æfingarnar fara fram 2x í viku. Hvert tímabil er einn mánuður, eða 8 æfingadagar. Ekki þarf að taka alla mánuðina, hægt er að kaupa bara júní, bara júlí eða bara ágúst. Fyrstir koma, fyrstir fá, þó með tilliti til þess að ef einhvern bókar allt sumarið, þá á hann forgang. Þetta er ekki hópþjálfun, heldur pjúra einkaþjálfun sem er sett þannig upp að nemendur hafi æfingafélaga allt sumarið, því það hefur sýnt sig og sannað að það að hafa æfingafélaga, skilar betri árangri. ATH! Þjálfunin sem um ræðir er einungis ætluð keppnis fólki með metnað og hefur áhuga á að ná árangri og er tilbúin að leggja á sig það sem þarf til að ná árangri. Fýlupúkar, letingjar og neikvæðir einstaklingar er ekki heimiluð þáttaka. Einnig eru þeir einstaklingar ekki velkomnir sem ekki kunna að meta það sem þeir eru með í höndunum og halda að kraftpúst, nýtt fatbar stýri eða nýji Chad Reed gallinn geri gæfumunin. Ég legg allan minn metnað í mína þjálfun um að nemendur mínir sýni bætingu, betri árangur í keppnum og nái sem mestum árangri, og geri því kröfu um að nemendur sýni metnað til baka og vilja um að ná sömu markmiðum. Þeir sem hafa áhuga á  Keppnis þjálfun í sumar geta sent mér línu á aron@aron66.is

Svo er á dagsskrá sérstakt “Klausturs námskeið” getið lesið allt um það hér.

 


Chad Reed reiður

Rakst á mjög svo áhugavert viðtal við Chad Reed þar sem hann talar opinskátt um það sem betur má fara í supercrossinu og hvernig honum finnst það vera að þróast. Hann talar einnig um kaflann þar sem Villopoto brotnaði, þar sem það sást í sjónvarpinu þegar hann var að biðja þá um að breyta kaflanum, og svo var aftur sýnt þegar þeir fóru með bobcat að breyta honum. Hann segir það hafa verið feikað atriði og þeir hafa í raun engu breytt. Hann lætur þá hjá Feld Racing alveg heyra það.

Smellið á myndina til að sjá viðtal


Motocross æfingar um helgina

Motocross æfing fyrir 50cc-85cc verður í bolöldu á sunnudag kl 16:00-17:30.  Hópnum verður skipt í tvennt, Gulli & Helgi Már sjá um kennsluna. 1000 krónur kostar á námskeiðið og þarf  að kaupa krakka miða í brautina í Litlu Kaffistofunni.

Motocross æfing fyrir 125cc-500cc verður frá kl 17:30-19:00 í stóru brautini.  Hópnum verður skipt í tvennt, Gulli & Helgi Már sjá um kennsluna. 1000 krónur kostar á námskeiðið og þarf  að kaupa miða í brautina í Litlu Kaffistofunni. Lágmark 10 ökumenn.

Þeir sem hafa áhuga á að fá einkakennslu eða hóptíma (nokkrir félagar saman 2-6 saman í hóp) geta haft samband við Gulla í s: 6610958 eða Helga Má s:6928919

Síða 5 af 15« Fyrsta...34567...Síðasta »