Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


2. Apríl. Ekki síðri hjóladagur.

Ekki besta hjólaveðrið. En til hvers að kvarta. Það var hægt að hjóla.

Nokkrir ALVÖRU hjólarar létu veðrið ekki hafa áhrif á sig og hjóluðu eins og enginn væri morgundagurinn. Brautin var ágæt en það var pínkulítið kalt. En þá var bara að klæða sig aðeins betur. Það voru tekin reis. Það voru teknir endurohringir. Og það voru teknir fullt af æfingahringjum. Er hjólalífið bara ekki æðislegt… Lesa meira af 2. Apríl. Ekki síðri hjóladagur.


1. Apríl. Góður hjóladagur. Ekki spurning.

Spennt mæðgin að græja sig fyrir átök dagsins.

Í brautinni hjá Þorláki var slatti af fólki, en þó ekki eins mikið og hefði mátt gera ráð fyrir svona í byrjun páskahelgarinnar. Það skemmdi þó ekki gleðina fyrir þeim sem mættu. Crossbrautin var í “keppnis” standi og var mjög fínt að æfa sig við þessar aðstæður. Það var auðséð á mörgum að hæfileikarnir hafa fengið að rykfalla í vetur, en það slípaðist vel til hjá flestum. Endurobrautin þótti í fínu standi og var tekið vel á henni af þeim sem þar hjóluðu.

Miðað við veðurspá er Þorlákshafnarbrautin eina notahæfa brautin hér á Stórhöfuðborgarsvæðinu. Ekki er vitað hvernig Ólafsvíkurbrautin er en miðað við þá reynslu sem greinarhöfundur hefur að þeirri braut, þá er ansi kalt og hvast í norðanátt eins og nú er.

Vonandi skemmti þið ykkur vel, fullt rör og engar bremsur. Lesa meira af 1. Apríl. Góður hjóladagur. Ekki spurning.


Rafmagns-KTM-ið komið til Íslands – Sýning í dag

Nýja KTM hjólið, knúið með rafmagni, verður í MOTO í dag

Nýju rafmagnsmotocrosshjólin frá KTM sem slógu í gegn á Alþjóðlegu mótorhjólasýningunni í Japan um síðustu helgi eru komin til landsins. Kalli Katoom hefur nokkuð góð sambönd í Austurríki og fékk hjólin lánuð í tvo daga nú þegar þau eru á leiðinni heim eftir sýninguna.  Hjólin koma í verslunina Moto í Rofabæ 7 um klukkan 11 í dag og ekki ólíklegt að KG sjálfur myndi læðast í smá sprett á supermoto-hjólinu í hádeginu eins og hann orðaði það. Verslunin verður opin allan daginn í tilefni þessa og boðið verður uppá kaffi og meðlæti.

Síða 15 af 15« Fyrsta...1112131415