Nýjar smáauglýsingar

Tímatökusendir

Nýrri týpan af tímatökusendi ásamt hleðslut...
[Read more]

Bling bling Kawasaki kxf 250 2008 - Vill 450 hjól í skiptum!

Er með fallegt kawasaki kxf 250 árgerð 2008 til...
[Read more]

óska eftir fjórgengis 250cc hjól

óska eftir 250+cc fjórgengis allt kemur til grei...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


Álfsnes lokuð á morgun vegna viðhalds

Álfsnes verður lokuð á morgun vegna viðhalds þar sem meðal annars pallar verða lagaðir o.fl.  Það verður jarðýta sem vinnur verkið undir leiðsögn Reynis.  Á sunnudag verður svo vinnudagur í Álfsnesi frá kl.10 – 13 og fá þeir sem mæta til vinnu, á réttum tíma, smá forskot á sæluna og keyra einir í brautinni frá kl 13 – 15.  Brautin verðu svo opnuð almenningi frá kl 15 á sunnudaginn.  Er þetta í raun fyrsta lagfæringin á brautinni síðan fyrir síðasta mót í Íslandsmeistaramótinu sem haldið var í júlí í fyrra.  Þannig að hún ætti að verða eins og best verður á kosið á sunnudaginn.  Minnum á miða í brautina sem fást á N1 í Mosfellsbæ.


Árskort í VÍK brautirnar til sölu hér og nú

motogp10.gifÁrskort í motocross brautir VÍK í Bolaöldu og Álfsnesi eru komin í sölu hér og nú. Verðið á kortunum hefur lækkað talsvert frá því í fyrra en verðið á stökum miðum hefur hækkað. Kort fyrir stórt hjól kostar nú 20.000 en fyrir lítið hjól 10.000 (Stórt hjól er 125cc tvígengis og 250c fjórgengis og stærra). Árskortin eru gefin út á einstaklinga en ekki hjól og ekki er hægt að lána kortið á milli manna.

Árskortið gildir í báðar motocross brautir félagsins í Álfsnesi og Bolaöldu. Í sumar verða dagsmiðar í brautirnar seldir á 1.500 kr. fyrir félagsmenn og 2.000 kr. fyrir aðra. Lesa meira af Árskort í VÍK brautirnar til sölu hér og nú


Hjólamenn óskast í Hjaltalín videó um helgina

Hljómsveitin Hjaltalín óskar eftir aðstoð við gerð tónlistarmyndbands um helgina. Hugmyndin er að fá 6-8 manns á götuskráðum hjólum til að leika í myndbandinu. Æskilegast er að menn séu á Supermotodekkjum en ekki nauðsynlegt en hjólin verða þó að vera götuskráð. Upptökur fara fram á seint á sunnudagskvöldið. Þeir sem hafa hug á að taka leika (sér) í ódauðlegu myndbandi með Hjaltalín geta hringt í Rebekku í síma 867 0505 sem fyrst.


Árskort 2010 EITT stórt hjól og EITT lítið hjól


Árskort 2010 EITT stórt hjól og TVÖ lítil


Árskort 2010 TVÖ stór hjól og EITT lítið

Síða 1 af 1512345...Síðasta »