Hér er video frá annari umferð Íslandsmótsins í íscrossi í boði jonni.is
Hér er video frá annari umferð Íslandsmótsins í íscrossi í boði jonni.is Já eins og legið hefur í loftinu þá hefur keppnin á Klaustri verið endurvakin. Keppnin fer fram 23. maí nk. í landi Ásgarðs sem er ca. 2 km. ofan við gömlu brautina. Gengið hefur verið frá 5 ára samningi við landeigendur um keppnishaldið og ef allt gengur að óskum munum við byggja upp aðstöðu við brautina fyrir keppendur og áhorfendur. Þessi samningur er mjög ánægjulegur og verður vonandi lyftistöng fyrir sportið ekki síður en ferðamennsku á svæðinu. Feðgarnir Eyþór og Hörður á Ásgarði og tengdasonur Eyþórs Guðmundur Vignir sem einnig er rekstraraðili Skaftárskála eiga bestu þakkir skyldar fyrir að bjóða hjólafólk velkomið á landið sitt. Það er því markmið okkar að þetta samstarf og umgengni á svæðinu öllu verði til fyrirmyndar. Aðalfundur Vélhjólaíþróttaklúbbsins verður haldinn þriðjudaginn 16. mars nk. kl. 20 að Engjavegi 6, ÍSÍ húsinu. Á dagskránni eru helstu aðalfundarstörf, skýrsla stjórnar, yfirferð reikninga, kosning stjórnar og nefnda. Að auki verða kynntar helstu áherslur í starfi félagsins til framtíðar sem verður mjög áhugavert. Við viljum einnig fá umræðu um starf félagsins og innlegg frá áhugasömu fólki sem vill hafa áhrif á störf félagsins. Kröftugt félagsstarf hefur aldrei verið mikilvægara og því væri gaman að fá fleira fólk til starfa með okkur í stjórn, nefndum, foreldrastarfi og öðrum verkefnum félagsins. Ef þú hefur áhuga eða vilt bara koma nýjum hugmyndum á framfæri sendu okkur þá endilega póst á vik@motocross.is Kveðja, stjórn VÍK Ferða og útivistarfélagið slóðavinir vekur athygli á félagsfundi sem fram fer 3. mars kl. 20:00 hjá Arctic Trucks, Kletthálsi 3. Öllu áhugafólki um ferðalög til fjalla er boðið að taka þátt. Undanfarnar vikur hefur hörð, óvægin og einsleidd umræða átt sér stað í bloggheimum og fjölmiðlum um umferð vélknúinna ökutækja í náttúru Íslands. Upphafið að þessari umræðu má rekja til erindis Andrésar Arnalds, fagmálastjóra hjá Landgræðslunni, sem flutt var á málstofu hjá Landbúnaðarháskóla Íslands fyrir nokkru. Í erindinu teiknar Andrés upp dökka mynd af þróun skipulagsmála á Íslandi: Stjórnlausri nýmyndun vegslóða, algjöru aðgerðarleysi stjórnvalda, virðingarleysi ferðaþjónustuaðila við umhverfið, og slæleg vinnubrögð við útgáfu landakorta svo eitthvað sé nefnt. Máli sýnu til stuðnings notar Andrés ljósmyndir og texta sem teknar eru af heimasíðum hjólafólks, jeppafólks, félagasamtaka og ferðaþjónustuaðila. Andrés mun flytja erindi sitt á fundinum. Andrés hefur náð að hrista vel upp í jeppa-, mótorhjóla- og göngusamfélaginu og án efa mun hann geta hrist upp í fundarfólki á miðvikudaginn líka. Ómar Ragnason flytur erindi á fundinum og mun án efa ná að hrista upp í fundarfólk líkt og Andrés, en þó vonandi með öðrum formerkjum. Stjórn félagsins kvetur alla sem áhuga hafa á málefninu að fjölmenna á fundinn. | ||