[flv width="512" height="310"]http://www.motocross.is/video/mxgf/bbb/bbb.flv[/flv]
Nú styttist í Black Beach Bakka keppnina, hér er smá vídeó bútur sem tekinn var af Eyþóri #11 á svæðinu í fyrra: [flv width="512" height="310"]http://www.motocross.is/video/mxgf/bbb/bbb.flv[/flv] 3. hluti viðhaldsnámskeiðs VÍK sem var dagsett á morgun, Miðvikudaginn 31.03.2010. Frestast til Miðvikudagsins 07.04.2010. Þetta gerum við vegna þess að margir eiga ekki heimagengt annað kvöld. Vonandi veldur þetta ekki óþægindum fyrir ykkur. MBK Óli Gísla Ferða- og útivistarfélagið Slóðavinir halda skyndihjálparnámskeið á miðvikudagskvöld. Farið yfir þau atriði sem snúa beint að mótorhjólafólki og þeim áverkum sem við verðum oftast fyrir. Kennari á námskeiðinu er Björgvin Herjólfsson, skyndihjálparkennari, en hann kom líka til okkar í fyrra og þótti standa sig mjög vel. Námskeiðið tekur mið af þeirri skyndihjálp sem veitt er á fjöllum, fjarri góðum samskiptum og hjálp. Meðal efnis sem farið verður yfir er beinbrot, innvortis áverkar, hreinsun sára, stöðvun blæðingar, marblettir og bólgnun, áverkagreining o.fl. Námskeiðið verður bæði bóklegt og verklegt. Fyrir verklega hlutan eru þátttakendur hvattir til að taka hjálminn sinn með. Við munum æfa okkur í að taka hjálm af “slösuðum” félaga okkar. Lesa meira af Skyndihjálparnámskeið Slóðavina á miðvikudagskvöld Fullt af fréttum frá Flórída. Í tilefni af 30 ára farsælum keppnisferli mun Ragnar Ingi Stefánsson, nífaldur Íslandsmeistari í Motocross gefa góð ráð og veita eiginhandaráritanir í Kringlunni kl. 16 í dag á annarri hæð fyrir framan Hagkaup. Einnig mun Ragnar fara yfir ferilinn í máli og myndum, stilla sér upp í myndatökur og gefa plaköt og póstkort. Missið ekki af einstöku tækifæri til þess að hitta eina af skærustu stjörnu Íslands í eigin persónu. Amk. þá eru hjólaumboðin troðfull af nýjum hjólum þessa dagana. Í Nítró er nýbúin að vera stórsýning á 2010 árgerðunum og að sögn Ragnars Inga þá er góður gangur í sölunni hjá þeim. Hjá Moto er troðfull búð af nýjum hjólum, að sögn Kalla þá eru flest hjólin seld og ekki annað að sjá en að hægt sé að taka fleiri hjól til landsins. Honda var að fá væna sendingu af hjólum og er salan þar vonum framar, virðist meira segja vera þannig að það verði vöntun á rauðu hjólunum ef fram fer sem horfir. Vefurinn kíkti á sýninguna hjá Nítró í síðustu viku og nú var litið við hjá Moto og Honda og myndavélin var tekin með. Yamaha mun vera að fá til landsins nýja 450 hjólið og ætti það að vera til sýnis von bráðar. Sumarið ætti að geta verið frábært hjá okkur og jafnvel fullt af nýjum hjólum á ferðinnin. Við hvetjum hjólara til að líta við í umboðunum og skoða dýrðina sem þar er til sýnis. Það er svo gaman að skoða splúnkara hjól. Lesa meira af Krepppa? Ekki er það að sjá. | ||