Um komandi helgi er Le Touquet keppnin. Þessi keppni er sýnd beint á Motors TV á Sunnudag, útsending ætti að hefjast um kl 12.00 á ísl tíma.
Þessi keppni er almennt talin hrikalega erfið og oft er eitthvað um slys, enda er sandurinn þarna svakalega erfiður . Í fyrra var veðrið mjög slæmt og útsýni fyrir keppendur af skornum skammti. Úr því varð mikið kaós þegar keppendur urluðust á hausinn. Við þær aðstæður var mikið um alvarleg slys og aflýsa þurfti keppninni. Vonandi verður sama ekki upp á teningnum núna því að það er mikil skemmtun að horfa á þessa keppni. Keppendur urlast á hausinn á hreint ótrúlegan hátt og er skemmtun að horfa á meðan enginn meiðist. Lesa meira af Le Touquet Beach Race.

Námskeiðið er ætlað krökkum sem stunda eða hafa áhuga á motocrossi. Þetta er gert til þess að krakkar sem eru að hjóla fá að kynnast, hittast og leika sér saman í íþróttasal. Á námskeiðunum er farið í leiki, gerðar þrekæfingar ásamt því að horft verður á kennslumyndbönd um motocross.