Önnur keppni vetrarins í Endurokrossi á sunnudaginn í Reiðhöllinni

Kári Jónsson vann fyrstu umferðina
Kári Jónsson vann fyrstu umferðina

Á sunnudaginn 14. febrúar nk. munu Nítró og Vélhjólaíþróttaklúbburinn endurtaka leikinn og bjóða til mótorsportveislu í Reiðhöllinni í Víðidal. Þetta er í annað skipti á Íslandi sem svona keppni er haldin en síðasta er bæði keppendum og áhorfendum ógleymanleg.

Skemmtun fyrir áhorfendur og pressa á keppendur.

Brautin síðast reyndist mörgum ótrúlega erfið og þess er að vænta að menn mæti enn grimmari til leiks núna þegar menn vita hverju má búast við. Brautin um helgina verður þó án efa talsvert breytt og með öðru sniði og ætti að bjóða upp á harða keppni milli allra bestu hjólaökumanna landsins. Sem fyrr eiga keppendur von á spennandi hindrunum; stökkpöllum, staurabreiðum, stórgrýti, hleðslusteina- og dekkjahrúgum, kubbagryfjum og mörgu fleira.

Grjótakaflinn þótti nokkuð erfiður síðast
Grjótakaflinn þótti nokkuð erfiður síðast

Hörð og spennandi keppni

Allir bestu torfæruhjólaökumenn landsins munu mæta til keppni hungraðir að standa sig enn betur en síðast og ná titli í þessari fyrstu keppni. Núna verða keyrðir færri riðlar og dagskráin verður mun áhorfendavænni. Fyrstu menn í hverjum riðli og Síðasta séns komast áfram í lokariðillinn þar sem allt verður lagt undir og búast má við harðri keppni og mikilli skemmtun.

Glæsileg verðlaun

Sigurvegara keppninnar vera verðlaunaðir með glæsilegum verðlaunum bæði en öll keppnisgjöld renna óskipt til þeirra sem keppa í lokariðlinum.

Endurokrosskeppnir af þessu tagi njóta mikilla vinsælda í Evrópu og Bandaríkjunum. Veðrið spillir oft fyrir keppnishaldi hér á landi og því hafa ekki skapast tækifæri áður til halda keppni af þessu tagi á Íslandi. Keppnin er haldin öllum hjólafólki til skemmtunar en ekki síður sem fjáröflun fyrir Vélhjólaíþróttaklúbbinn til að halda áfram uppbyggingarstarfi félagsins.

Takið því frá sunnudaginn 14. febrúar kl. 14-16 og sjáumst í höllinni

Skráning keppenda er hafin hér á vefnum, takmarkaður fjöldi kemst í keppnina og keppnisstjórn áskilur sér rétt til að velja og hafna keppendum.

Flogið í Reiðhöllinni
Flogið í Reiðhöllinni
Grjótið skoðað nánar
Grjótið skoðað nánar

434
Troðfull Reiðhöllin á síðustu keppni

Skildu eftir svar