30. Pumpaðu þig upp. Reyndu að keyra stíft í tímatökum til að hita þig upp og jafnvel fá smá armpump í gang. Þá verða hendurnar orðnar heitar og slakar þegar kemur að fyrsta motoi og vonandi færðu ekki meira pump í hendurnar. – Tim Ferry.
30. Pumpaðu þig upp. Reyndu að keyra stíft í tímatökum til að hita þig upp og jafnvel fá smá armpump í gang. Þá verða hendurnar orðnar heitar og slakar þegar kemur að fyrsta motoi og vonandi færðu ekki meira pump í hendurnar. – Tim Ferry.
Missið ekki af snilldartilþrifum og hörkukeppni rétt fyrir fréttir. ![]() Jafnvægisæfingar Nú eru æfingar að hefjast aftur á nýju ári, fyrsta æfingin verður á þriðjudag 05.01.10.og hefst að venju með útihlaupum kl 20:00. Æfingarnar eru haldnar í sal fimleikadeildar Ármanns í Laugardal. Æfingarnar eru settar upp þannig að þær henti öllum, alveg sama á hvaða aldri eða kyni iðkendur eru. Ef einhver hefur áhuga á því að taka þátt í sprikklinu þá er laust pláss fyrir 4. Kostaður er 4000 kr á mánuði, þjálfun er á vegum fimleikaþjálfara, skal það tekið fram að þetta er hörku púl. Í útihlaupinu er hlupið 5-7 km og ætti það að skila sterkum lungum fyrir átök sumarsins. Það er vöntun á kvennfólki í hópinn þar sem einungis 1-2 stelpur hafa verið að mæta að staðaldri á æfingarnar. Ef þú hefur áhuga hafðu samband við Óla í S: 864-1243 eða emil: olafur@bernhard.is ![]() Að sjálfsögðu var stillt upp fyrir race. Hvað annað. Þar sem nýja árið heiðrar okkur með frábæru vetrar veðri var stefnan tekin á að prufa smá íscross á Hafravatni. Það var þvílíkt flottur hópur mættur til að sýna sig og sjá aðra. Að sjálfsögðu voru sumir þarna til að keppa við allt og alla en aðrir bara til að leika sér. Einnig var verið á snjósleðum, fjórhjólum, buggy, skautum, og ýmsu fleiru á ísnum og mikið fjör hjá öllum. Það var búið að stika út brautarstæði með einföldum hætti og dugði það vel til að hægt væri að hafa gaman af. Nokkrir voru aðeins of ákafir á áramótagjöfinni og tóku gott sýnishorn af ísnum, þar voru sennilega fremstir í flokki Skaðinn Daðinn og Sveppagreifinn sem fengu sér góðann ís með dýfu eins og Greifinn sagði | ||