James Stewart ekki meira með

Team San Manuel Yamaha ökumaðurinn James Stewart fór í aðgerð síðdegis í dag,  til að laga bein í hægri úlnlið. Eftir þriðju umferðina var Stewart farinn að upplifa alvarlega verki í úlnlið. Þó svo að myndatökur af hendi Stewart hafi ekki sýnt að hann væri brotinn þá þurfti hann að hitta sérfræðing í morgun og þá kom í ljós að um brotna hendi væri að ræða.

Stewart mun ekki keppa í San Francisco þessa helgi. Endurkoma hans í Supercrossið fer eftir hversu fljótt hann nær að batna eftir skurðaðgerðina og verður metin og endurskoðaður vikulega.

„James er sannur meistari “ og ótrúlegt að hann hafi endað annar um síðustu helgi í Anaheim 2 með brotna hendi segir Larry Brooks liðstjóri liðsins.

4 hugrenningar um “James Stewart ekki meira með”

  1. Nú getur Dungey haldið áfram og gert sitt besta. Vonandi nær að vinna tímabilið, það verður spennandi keppni í kvöld. Það er ekki spurning um það.

  2. Ég held að hann mæti með spelku á úlnliðnum í næstu keppni, hann horfir ekki á einhvern nýliða vinna þetta

  3. Hann ætti að gera það. Keppnin í gær var víst spennandi, leiðinlegt að tveir af bestu ökumönnunum séu dottnir út bæði Reed og Stewart.

Skildu eftir svar