Nýjar smáauglýsingar

Tímatökusendir

Nýrri týpan af tímatökusendi ásamt hleðslut...
[Read more]

Bling bling Kawasaki kxf 250 2008 - Vill 450 hjól í skiptum!

Er með fallegt kawasaki kxf 250 árgerð 2008 til...
[Read more]

óska eftir fjórgengis 250cc hjól

óska eftir 250+cc fjórgengis allt kemur til grei...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


Skráningu í Endurokross lýkur á miðvikudag kl. 22

Undirbúningur fyrir endurokrossið í Reiðhöllinni er nú á fullu og nú fer skráningu í keppnina að ljúka og stilla upp riðlakeppninni. Keppendalistinn hefur ekki verið tekinn saman en við getum staðfest að margir (ef ekki allir) grimmustu hjólarar landsins eru búnir að skrá sig til keppni. Skráningu lýkur kl. 22 á miðvikudagskvöldið og fljótlega þar á eftir kemur í ljós endanleg dagskrá og keppendalisti.

Eftir hádegið á föstudag verður byrjað að raða brautinni upp og þá verður öll aðstoð mjög vel þegin. Menn með verkfæri, bor/skrúfvélar, hamra og nagla og fullt af áhuga eru velkomnir til að aðstoða okkur fram á kvöld. :)


Motocross 101: Prufaðu þig áfram

16. Prófaðu þig áfram.
Ekki festast í að keyra alltaf sömu brautina alla daga. Það er auðvelt að ná góðum tökum á einni braut og vera hetja þar. Hvað gerist svo þegar þú þarft að keppa í annarri braut? Prófaðu að keyra í mismunandi aðstæðum, sandi og drullu, blautu og þurru. Tim Ferry.


Helgin og liðin vika.

Þar sem veðurguðunum fannst nóg um allt það góða hjólaveður sem okkur hefur verið boðið uppá undanfarið þá tókur þeir á það ráð að skella yfir okkur frosti, funa og snjó til að sjá hvort að ekki myndi slá eitthvað á hjólagleðina. En að sjálfsögðu látum við hjólafólk ekki neitt svoleiðis á okkur fá. Í gær, Laugardag, var víst satti af fólki að tæta og trylla í Þorlákshöfn, bæði í cross og enduró og höf’u allir gaman af.

Að sjálfsögðu erum við hjólafólk tilbúin fyrir allar veðuraðstæður og voru einhverjir klárir með nagla og skrúfudekk undir tuggurnar í dag. Ég skellti mér upp á Hvaleyrarvatn til að sjá hvort að það væri fjör þar, en eitthvað var ég seinn því allir voru farnir af svæðinu þó var auðséð að einhverjir höfðuverið þar að taka á tuggunum.  Einnig kíkti ég við uppá Leirtjörn en það virðist sem að allt vatn vanti þar og skaga bara malarhaugar uppúr vítt og breytt um pollinn.

Drullumallarsprikklarar eru á fullum krafti að æfa sig fyrir næsta tímabil, góður hópur hefur verið að taka vel á því undir harðri stjórn fimleikakennara í Ármannsheimilinu. Það er þvílíkur krafturinn í þeim hóp að allir þar hafa bætt sig gríðarlega og má búast við þeim í feiknarformi á næsta tímabili. Lesa meira af Helgin og liðin vika.


Motocross 101: Fjölbreytni er málið

15. Fjölbreytni er málið.
Prófaðu mismunandi línur í brautinni þegar þú ert að æfa eða í tímatökum. Þó allir keyri ytri línuna í einhverri beygju þarf það ekki að þýða að þú eigir ekki einu sinni að reyna að keyra innri línuna. Þá veistu amk. þegar kemur að keppninni hvort innri línan hafi eitthvað að bjóða fyrir framúrakstur. – Jason Lawrence.


Nýr diskur!

Ferðin á MXON og Lex Games

Ferðin á MXON og Lex Games

Ferðin á MXON og Lex Games + Aukaefni.
Troðfullur DVD diskur sem inniheldur þátt um ferð landsliðsins á Motocross of the Nations keppnina á Ítalíu í október, tvo þætti um Lex Games leikanna sem fram fóru í haust og síðasta en ekki síst Fréttatíma MXTV sem sló í gegn á uppskeruhátíð MSÍ ásamt tónlistarmyndböndum frá keppnisárinu 2009 og MXON keppninni.

Diskurinn verður eingöngu seldur hérna á vefnum. Verð 2.500,- Diskurinn er sendur ókeypis í pósti til kaupenda.

Smelltu HÉRNA til að kaupa disk.


Justin Barcia og Tyler Wozney – Blue Diamond MX ofl.

Þar sem vetur konugur er að láta vita af sér þá er alltaf gott að sjá smá ræmu frá úthverfum Íslands.

Hér eru frískir stákar að djöflast á tuggunum sínum, rétt svona í svipuðu veðurfari og var hjá okkur um síðastliðna helgi.   SJÁ RÆMU HÉR.   OG SMÁ HELMET CAM FRÁ JUSTIN BARCIA HÉR. Hlustið á over reveið í loftinu.

Þar sem hin alræmda, margumtalaða, eftirsótta, spennandi, ofsaerfiða og skemtilega ENDUROCROSS keppni, verður um aðra hlegi má gera ráð fyrir því að helillir ökumenn verði að æfa sig vítt og breytt. Þar sem snjór og kuldi mun aðeins slá á notkunarmöguleika Bolaöldubrauta,  má gera ráð fyrir því að Þorlákshafnarbrautin verði nýtt vel þessa helgi. Einnig er líklegt að menn leyti að ógeðslegum stöðum til að æfa sig á, svo sem hrikalegum steinahrúgum, sleipum og slepjulegum staurum, risvöxnum ofurdekkjum og öðru sem gæti verið í keppninni.

Einnig má gera ráð fyrir því að vetrar-hörkunaglar brosi  breytt núna, því að sumir eru bara svo ein-stakir að þeim finnst æðislegt að vera úti í skítakulda og hjóla um á gaddfreðnu vatni eða einhverju þvílíkt verra.

Farið hratt um brautanna hlið og hafið gaman af.

Síða 1 af 1312345...Síðasta »