Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Hágæða slóðakerfi á Íslandi

Í Morgunblaðinu í dag er áhugavert viðtal við Russ Ehnes, framkvæmdastjóra bandarísku hagsmunasamtakanna National Off Highway Vehicle Conservation council(NOHVCC), en hann var staddur hér á landi í vikunni sem leið.
En þess má geta Íslendingar hafa þrisvar mætt á árlega ráðstefnu NOHVCC í USA til að fræðast um slóða og aðferðarfræði þeim tengdum.

Greinina má nálgast hér

Eldri grein um NOHVCC eftir Hjört L. Jónsson, hér


MXoN í beinni útsendingu HÉR á vefnum

Kúluvarparar hafa Ólympíuleikana, golfarar hafa Ryder Cup en motocrossið hefur Motocross of Nations. Motocross.is sýnir beint frá stærstu og skemmtilegustu mótorhjólakeppni í heiminum: Motocross of Nations. Hér mætast 3ja manna landslið frá 35 löndum og keppa fyrir þjóðarstoltið og ekkert annað.

Smellið hér fyrir dagskránna:

Lesa meira af MXoN í beinni útsendingu HÉR á vefnum


Seinni leitir í landnámi Ingólfs

Göngur og réttir eru í öllu Landnámi Ingólfs Arnarsonar dagana 3.-5. október. (Sjá nánar í réttaskrám á vefnum http://www.bondi.is).
Þetta eru einkum Fóelluvötn (inn af Sandskeiði), Lyklafellssvæðið, Mosfellsheiði, Hellisheiði, Grafningsfjöll, Hengilssvæðið, Þingvallaheiði, Esja og Kjós og á Selvogsheiði, auk beitarhólfa á Reykjanesskaga svo sem í Sveifluhálsum og Krýsuvík.
Fólk á mótorhjólum er vinsamlegast beðið að vera ekki á þessum svæðum þessa daga vegna truflana sem það getur valdið við smalamennskur.


að MXoN verði í 33% betri myndgæðum en áður hefur þekkst


Inniæfingar fyrir yngstu ökumennina

Komiði sæl og takk kærlega fyrir skemmtilegt sumar.

Nú er loks komið á hreint að VÍK mun standa fyrir þrekæfingum fyrir krakkana sem voru á æfingunum í sumar. Inniæfingar munu hefjast þann 1. október í íþróttasal Selásskóla. Æfingarnar munu verða á mánudögum og fimmtudögum kl. 17-18

Verð fyrir þessar æfingar er 15.000 kr. fyrir tímabilið október-desember og 18.000 frá janúar og út apríl.

Námskeiðið er ætlað krökkum sem stunda eða hafa áhuga á motocrossi. Þetta er gert til þess að krakkar sem eru að hjóla fá að kynnast, hittast og leika sér saman í íþróttasal. Á námskeiðunum verður farið í leiki, gerðar þrekæfingar ásamt því að horft verður á kennslumyndbönd um motocross.

Kennarar á þessum námskeiðum verða þeir sömu og voru með námskeiðin í sumar, þeir Gulli og Helgi Már.

Smellið á lesa meira til að skrá ykkur

Lesa meira af Inniæfingar fyrir yngstu ökumennina


Þrekaæfingar mótorhjólaíþróttafólks

Styrktaræfingar

Styrktaræfingar

Minni þá sem skráðu sig í æfingarnar á að 1. æfing er í kvöld kl:20:00. Mæting í andyri fimleikadeildar Ármanns Laugardal. ( Glerhúsið sem er við enda Þróttara heimilisins. )

Mætið tímalega, útihlaupin byrja kl:20:00, það er ekki beðið eftir þeim sem kunna ekki á klukku. Það er engin afsökun tekin gild fyrir því að mæta ekki í hlaupin / Kraftgöngu. Ef mætt er of seint þá er refsing fyrir það á æfingu :)   Skemmtun fyrir þá sem mæta á réttum tíma……

Æfing í sal er kl 20:30

Sjáumst hress og kát.

Óli Gísla S: 864-1243
Lesa meira af Þrekaæfingar mótorhjólaíþróttafólks

Síða 8 af 8« Fyrsta...45678