Maður bara spyr sig!!!!!!!
Þannig er mál með vexti að sl. mánudag fór ég að hjóla í nýrippaðri Álfsnesbraut, og hafði ljómandi gaman af, nema hvað að þó nokkuð af stóru grjóti var á ýmsum stöðum í brautinni. Við vorum, á þeim tíma, þrír að hjóla í brautinni. Við tókum okkur til og týndum stærstu grjótin úr brautinni og viti menn nú var hrein unun að keyra enda ekkert grjót að þvælast fyrir manni. Það var þörf á því að taka á honum stóra sínum í tvígang enda voru tvö risa grjót vel ofan í jörðinni ( toppurinn á ísjakanum stóð uppúr ) þetta tók okkur ekki nema ca 15 mín. Ekki sáum við eftir þeim tíma enda tekur mun lengri tíma að skipta um slöngu eða fyrir sár að gróa.
Nú!!! til að gera stutta sögu langa,!. Þá fór ég aftur að hjóla í Álfsnesbraut í gærkvöldi og viti menn, það var komið slatti af grjóti upp í brautinni. Ég hugsaði með mér “er grjótið eins og heilagar kýr ?” Bannað að hreyfa við því!? Það hlýtur að vera þannig í augum margra hjólara því að ég trúi ekki að fólk vilji keyra á steinana og slasa sig. Það er auðséð að það er einfaldara að keyra framhjá grjótinu hring eftir hring en að stoppa einu sinni eða tvisvar og henda steinunum út fyrir brautina. Ég fór í það, aftur og enn, og henti nokkrum “heilögum kúm” út fyrir brautina. Þvílíkur munur!!! Engir steinar að þvælast fyrir, amk mjög lítið af þeim og línan mín varð miklu betri.
Það væri þvílíkur munur ef hjólarar gætu séð af ca 5 mín í hvert skipti sem hjólað er og hent eins og 2-3 “heilögum kúm” út fyrir brautina, þá væru brautirnar okkar betri og betri í hvert skipti.

Að svissneskt fyrirtæki skuli smíða faratæki fyrir eyðimörk er nóg til að fá mann til að efast. En skyldi þetta farartæki vera eins skemmtilegt og þeir segja? Hröðunin á að vera frá 0 -100 km/klst á 2,8 sek og eiginleikarnir alveg frábærir. Þetta kemst svo 350 km á einum tanki af bansíni. Menn verða bara að dæma af myndunum…