Nýjar smáauglýsingar

Tímatökusendir

Nýrri týpan af tímatökusendi ásamt hleðslut...
[Read more]

Bling bling Kawasaki kxf 250 2008 - Vill 450 hjól í skiptum!

Er með fallegt kawasaki kxf 250 árgerð 2008 til...
[Read more]

óska eftir fjórgengis 250cc hjól

óska eftir 250+cc fjórgengis allt kemur til grei...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


Keppni 4. júlí, skráning opin – vinnukvöld á miðvikudagskvöld.

2. umferð í Íslandsmeistaramótinu í motocrossi fer fram um næstu helgi í Bolaöldu. Skráning er hafin á vef MSÍ og um að gera að skrá sig sem  fyrst til keppni. Sérstaklega eru eldri keppnismenn hvattir til að mæta og gera 40+ flokkinn keppnisfæran. Þá er rétt að minna á að keppnisgjöld fyrir 85 flokkinn (stráka og stelpu) eru aðeins 3.000 kr. til að fá sem flesta af ungu ökumönnunum til að vera með í þeim flokki.

Vinnukvöld verður á svæðinu á miðvikudagskvöldið frá kl. 19 og er öll hjálp velkomin. Þá verður talsvert unnið í brautinni næstu daga við lagfæringar á talsvert mörgum stöðum. Hún verður því opin næstu daga sem hér segir:
Þriðjudagur - lokað á milli 12 og 17 – opið um morguninn og eftir kl. 17.
Miðvikudagur – lokað á milli 12 og 17 og eftir kl. 20 – opið um morguninn og á milli 17 og 20
Brautin verður svo lokuð fimmtudag og föstudag fram að keppni.
Strax eftir keppni verður brautinni síðan breytt og akstursstefnunni snúið við fyrir keppnina sem haldin verður í Bolaöldu 22. ágúst. Breytingarnar næstu daga verða væntanlega umtalsverðar og verður spennandi að sjá hvernig menn kunna að meta þær.


..að MxTV ætli að sigra heiminn


Vel heppnaður krakkadagur hjá VÍR

Glæsilegur hópur á krakkaegi VÍR

Glæsilegur hópur á krakkadegi VÍR

Fyrsti Púkadagur sumarsins hjá Vélhjólaíþróttafélagi Reykjaness var haldinn sunnudaginn 21.júní í Sólbrekkubraut. Tæplega 30 börn upp að 12 ára aldri tóku þátt á þessum degi.

Frábært var að fylgjast með þeim, gleði og eftirvænting skein úr hverju andliti enda mörg þeirra búin að bíða lengi eftir þessum degi. Prúðmennskan og kurteisin voru í fyrirrúmi hjá þeim enda allt fyrirmyndar krakkar. Allt fór vel fram og sýndu mörg þeirra góð tilþrif og takta við aksturinn og gáfu stelpurnar strákunum ekkert eftir.

Foreldrar og velunnarar lögðu einnig hönd á plóg og sáu um að manna pallana auk þess að rétta fram fleiri hjálparhendur.

Á eftir var svo boðið upp á grillaðar pylsur og að sjálfsögðu fengu allir þáttakendur viðurkenningu frá VÍR auk glaðnings frá Sparisjóðnum í Keflavík.

VÍR mun verða með fleiri Krakkadaga og Unglingadaga í sumar og verða þeir auglýstir á vef félagsins www.vir.is. Þar eru einnig myndir og video.

Sérstakar þakkir fær Arnar Sveinbjörnsson í Hellusteini fyrir einstök liðlegheit við lagfæringu á brautinni. Einnig þökkum við öllum þeim sem komu að þessu með okkur og vonum að þið hafið haft jafn gaman af og við.

Kveðja, Púkadeild VÍR


Bikarmót á Ólafsfirði.

joikef1

Minni á bikarmótið í motocrossi á Ólafsfirði á laugardaginn 27. júní, þar sem besta veðrið á að vera, brautin hefur verið lengd í 1500m og er í frábæru ástandi með flottum stökkpöllum.

Það er ennþá opið fyrir skráningu á msisport.is

Nú er bara að skella sér norður og ná blúshátíðinni í leiðinni um kvöldið í kaupbæti.


Byrjendadagur í Bolaöldu á laugardaginn 10-13

VÍK ætlar að standa fyrir byrjendadegi á laugardaginn á milli kl. 10 og 13.

Litlu hjólin eru velkomin í stóru brautina á laugardaginn

Litlu hjólin eru velkomin í stóru brautina á laugardaginn

Þá býðst öllum sem ekki hafa keyrt stóru brautina eða treysta sér ekki til að keyra á venjulegum opnunartíma tækifæri til koma og prófa að keyra brautina  án truflunar frá þessm vönu keyrurum sem keyra brautina alla daga á ofurhraða, eða að því virðist. Hugmyndin er að  skipta þeim sem mæta í stærri hjól (125+) og minni hjól (65-85cc ) og skipta þeim svo inn í brautina á 15 mínútna fresti þannig að hvor hópur eigi sínar 15 mínútur í einu. Kl. 10-10.15 væru t.d. minni hjólin í brautinni – 10.15-10.30 væru stærri hjólin inn á og svo framvegis til kl. 13. Einar Sigurðarson o.fl. verða á staðnum og gefa góð ráð og leiðbeiningar um keyrslu í braut fyrir alla sem vilja. Svo má minna á motocrossæfingar VÍK sem hafa verið mjög vel sóttar og reyndar er nánast fullt í yngri hópana, mögulega getum við þurft að bæta við fleiri æfingahópum. Enn eru laus pláss hjá Össa og Aroni fyrir þá sem eru á stærri hjólum (125-250 og stærra).

Brautin verður því lokuð öllum öðrum en byrjendum á laugardagsmorguninn en opnar aftur fyrir alla kl. 13. Munið eftir miðunum sem fást hjá Olís eða kaffistofunni – góða skemmtun.


MotoMos námskeið fyrir alla, bæði konur og kalla!

valdiMotoMos, í samstarfi við Valda #270, standa fyrir motocross námskeiðum fyrir félagsmenn í MotoMos brautinni í sumar.
Við ætlum að hafa þetta á léttu nótunum, taka alla brautina fyrir og hafa gaman af.
Fyrsta námskeiðið byrjar sunnudaginn 28. júní, og stendur milli kl. 13:00 og  15:00,  og verða einu sinni í viku í 4 vikur.

Verðið er ekki af verri kantinum og kemur MotoMos svo sannarlega til móts við félagsmenn sína á krepputímum, en það kostar aðeins 2.500 kall skiptið (þjálfun og brautargjald).

Nú er um að gera að skrá sig í MotoMos ef þú ert ekki þegar búin/n að því og mæta á æfingar :)
Skrá sig í MotoMos smella hér.
Lágmarksfjöldi á hverja æfingu eru 3 þátttakendur, og þeir sem ætla að vera með þurfa að framvísa félagsskírteini og mæta með 2.500 kall á hverja æfingu.

Allir velkomnir,

Ef þið hafið einhverjar spurningar sendið þá póst á valdi270@gmail.com.

Síða 1 af 912345...Síðasta »