Tæplega 100 keppendur í endúróinu

 

Valdimar Þórðarson, Íslandsmeistari í Enduro 2008
Valdimar Þórðarson, Íslandsmeistari í Enduro 2008

Það er frábær þátttaka og veðurspá fyrir fyrstu og aðra umferð Íslandsmótsins í Enduro sem fara fram í Bolaöldu á laugardaginn. Rétt tæplega 1oo manns eru skráðir og stefnir í að Valdimar Þórðarson þurfi að hafa mikið fyrir því að verja Íslandsmeistaratitilinn frá því í fyrra. 

Keppnin fer fram í nýlagðri braut í Bolaöldu svæði Vélhjólaíþróttaklúbbsins rétt hjá Litlu Kaffistofunni og eru áhorfendur sérstaklega velkomnir að fylgjast með þessari fjölskylduskemmtun. Góð aðstaða er á svæðinu fyrir mörg hundruð manns og auðvelt að sjá keppnisbrautina. Af bílastæðinu sést nokkuð góður hluti og svo er einstaklega skemmtilegt að rölta aðeins uppí hlíðarnar og sjá afskekkta hluta brautarinnar. 

Að þessu sinni er keppt í þremur nýjum flokkum auk þeirra venjubundnu þ.e. Meistaradeildar og Baldursdeildar. Þeir eru 85cc flokkur, kvennaflokkur og 40+ flokkur og eflaust mun spennan í þeim flokkum verða gríðarleg eins og venjan er í endurokeppnum. 

Smellið til að sjá skráða keppendur

4 hugrenningar um “Tæplega 100 keppendur í endúróinu”

  1. En hvar er dagskrá fyrir keppnina? Það er bara dagskrá frá 2008 inn á vef MSÍ og hún getur varla verið gild þar sem það er búið að breyta einhverju síðan í fyrra.

  2. veit einhver hérna hvar er hægt að hjóla í sæmilegu skjóli fyrir þessu fja roki á reykjavíkursvæðinu?

Skildu eftir svar