Slóðar í Bolaöldu opnir

Búið er að opna fyrir akstur um slóða-net Bolaöldu.  Menn eru þó beðnir um að beita skynseminni vel í umgengni við slóðirnar – eins og alltaf.   Þó svo að stígarnir séu að mestu orðnir þurrir, þá geta leynst í þeim einstaka bleytusvæði.  Reynið að keyra ekki út fyrir stígana við slíkar aðstæður.  Minnkið frekar hraðann og læðist yfir.  Með því móti minnka líkurnar á skemmdum og slysum.

Varðandi slóðaakstur á vorin, snemma á sumrin og reyndar alltaf, þá er rétt að benda á eftirfarandi:

  • Farið varlega í fyrstu ferðum.  Bæði er hugurinn oft tilbúinn í meira en líkaminn ræður við, og svo liggja oft grjót í slóðunum eftir veturinn.  Eins getur vatn hafa rofið stígana.
  • Í þáatíð liggur oft lúmsk drulluskán í yfirborðinu, sem getur lagt menn umsvifalaust á andlitið.
  • Gefið ykkur tíma til þess að stoppa á ákveðnum köflum og hreinsið frá leiðinlegar/hættulegar fyrirstöður.  Ef allir gera þetta, þá má minnka hættuna á slysum til muna.

Munið svo gullnu regluna um að sýna öllu útivistarfólki virðingu, hvort sem viðkomandi er á vélhjóli, hesti, reiðhjóli eða bara gangandi.

Skildu eftir svar