Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Motocrossbrautin á Akureyri opnar

 

mmmmm sweet

mmmmm sweet

Motocross brautin á Akureyri verður formlega opnuð á morgun, laugardaginn 16. maí. Búið er að vinna við að koma brautinni í stand í vikunni, allir pollarnir voru ræstir út og brautin sléttuð. Brautin kemur ótrúlega vel undan vetri og er það að þakka því frábæra efni sem í henni er. Minni á að miðar eru seldir í bensínstöðinni N1 við Hörgárbraut (rétt hjá Bónus). Árskort verða seld eins og vanalega hjá Stebba Gull í Studio 6 og hefst sala þeirra mánudaginn 18. maí.

 

Til hamingju með Hjólasumarið mikla!!

Unnar Helgason

Lesa meira af Motocrossbrautin á Akureyri opnar


Álfsnes opnar á sunnudaginn

Motocrossrautin á Álfsnesi opnar á sunnudaginn kl. 13. Hún er í ágætis ástandi eftir veturinn og hefur ekki verið löguð neitt síðan í fyrra. Barnabrautin er í toppstandi, búið er að fara yfir alla palla og laga þá og bæta. Það er því um að gera fyrir alla fjölskylduna að kíkja á Álfsnesið á sunnudaginn og taka nokkra hringi. Munið bara eftir miðunum í brautina hjá N1 í Mosó.


Hafið með undirskrift forráðamanna

Eins og alltaf þá verða ólögráða keppendur að framvísa þátttökutilkynningu undirritaðri af foreldri/forráðamanni við skoðun hjóls.  Eyðublöð verða til taks á morgun en einnig má prenta út  neðangreindan texta og koma með það tilbúið á morgun.

Lesa meira af Hafið með undirskrift forráðamanna


Keppendur og félagsgjöld

Nokkur fjöldi keppenda virðist enn eiga eftir að ganga frá greiðslu félagsgjalda.
Gangið endilega frá því sem fyrst svo ekki komi til leiðinda á keppnisdegi, því ekki fæst leyfi til þátttöku nema frá því hafi verið gengið.


Dagskráin í Endúróinu

Dagskrá MSÍ Íslandsmótsins í Enduro 2009
Keppt er eftir Enduro reglum MSÍ (Mótorhjóla & Snjósleðaíþróttasamband Íslands).
Rétt er að minna keppendur og aðra sem hlut eiga að máli að Enduro reglur 2008 gilda fyrir þessa keppni og er þær að finna á www.msisport.is undir Reglur / Enduro reglur 2008.
Einnig sjá reglugerð um akstursíþróttir og aksturskeppni. 507/2007
Þar sem þessar reglur ná ekki til gilda alþjóðlegar reglur FIM.
Dagskrá MSÍ Íslandsmótsins í Enduro 2009

Lesa meira af Dagskráin í Endúróinu


…að Svíi verði fremstur á ráslínu í Miðnæturoffroadinu

Síða 5 af 12« Fyrsta...34567...Síðasta »