Skoðun fyrir keppni – Hvað þarf að hafa klárt?

Endurbirtum hér hvað keppendur verða að vera með á hreinu fyrir þátttöku í mótum á vegum MSÍ í sumar.

Fyrir allar keppnir á vegum MSÍ, þarf mótshaldari að sjá til þess að ökutæki verði skoðuð.
Tilgangurinn er fyrst og fremst sá að tryggja að í brautina fari ekki búnaður sem á einhvern hátt getur skaðað notandann eða aðra keppendur.  Hjá MSÍ og/eða FIM liggja fyrir skýrar reglur um það hvernig hjól eiga að vera útbúin og hvernig keppendur skulu mæta til leiks.  
Fyrir þá sem kannski eru að koma að þessu í fyrsta sinn, og náttúrulega til upprifjunar fyrir þá sem gjarnir eru á að gleyma, þá eru hér nokkur aðalatriði sem gott er að hafa í huga……
                                                    …því ef þau eru ekki í lagi þá fær hjól ekki skoðun:

Fyrst þarf að  ganga frá  pappírsmálum –  Ökuskírteini, Félagsskírteini, tryggingar og undirrituð þátttökuyfirlýsing (eyðublöð á staðnum) þurfa að liggja fyrir áður en hjól fæst skoðað. Börn þurfa yfirlýsingu frá forráðamönnum.

Keppandi mæti með hjálm til skoðunar sem þarf að uppfylla reglur og vera óskemmdur!

Svo er það hjólið – það helsta:
– Mæta með hreint hjól í skoðun
Keppnisnúmer á hjóli, vel stór og nógu varanleg. (..ekki eitthvað „tape“ dót )
Gjarðir (ekki skakkar) og allir teinar í lagi (herða lausa teina)
Bremsur í lagi (munið að prófa eftir dekkjaskiptingar)
Hjólalegur í lagi (farið vel yfir frágang á framöxli)
Standpetalar falli liðlega upp og niður
– Bremsu- og kúplingshandföng ásamt afturbremsu petala, óbrotin og ekki með skörpum endum
Bretti í lagi.
Hljóðkútur virkur! (..stikkprufur teknar í sumar…farið verður eftir lágmörkum! )

Góða skemmtun! ;-)

Skoðunarteymi VÍK

Ein hugrenning um “Skoðun fyrir keppni – Hvað þarf að hafa klárt?”

  1. Á laugardagsmorgun við skoðun keppnistækja mun fara fram hávaðamæling á keppnistækjum en mörkin eru dregin við 98dB. Þessu kemur til með að verða fylgt eftir á keppnistímabilinu 2009
    Tekið af vef MSÍ

Skildu eftir svar