- Aron Ómarsson
- Einar S. Sigurðarson
- Gunnlaugur Karlsson
- Kári Jónsson
- Gylfi Freyr Guðmundsson
Aron Ómarsson stakk af í MX-Open flokknum í öllum motounum þremur í dag. Hann leiddi alla hringi og fékk fullt hús stiga. Núverandi Íslandsmeistari Einar Sigurðarson varð í öðru sæti í öllum þremur motounum en þurfti að hafa nokkuð fyrir því í baráttu við Gylfa Frey Guðmundsson, Gunnlaug Karlsson og Ásgeir Elíasson. Má segja að Ásgeir hafi komið hvað mest á óvart með miklum hraða á sínu fyrsta ári í stóra flokknum. Brautin á Akureyri var í algjörum toppflokki og ekki skemmdi glæsilegt veður fyrir. Nánari úrslit hafa verið birt á vef MSÍ . MX-OPEN
![]() Veðrið fyrir norðan núna! Aron Ómarsson vann fyrsta mótoið í MX-Open flokki á Íslandsmótinu í motocrossi sem nú fer fram á Akureyri. Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Einar S. Sigurðarson varð annar, Kári Jónsson þriðji og Gylfi Freyr Guðmundsson fjórði. KKA menn eru búnir að vera fullu alla vikuna við að undirbúa brautina ![]() Væri gaman að koma þessari línu upp f. keppni! og segja hana vera orðna bestu braut á landinu og lofa frábærri keppni á sunnudaginn. Það hefur hins vegar ekki náðst að setja upp starthlið í brautina. Starthliðin úr Bolaöldu eru þó staðsett fyrir norðan (í sinkhúðun) og mögulega er hægt að setja þau upp á laugardag með hjálp góðra manna. Við auglýsum því eftir aðstoðarmönnum á laugardaginn kl. 10 við að henda hliðunum saman og gera keppnina enn skemmtilegri. Vinsamlegast kommentið við greinina ef þið getið mætt til að hjálpa. Kv. úr góða veðrinu f. norðan.
Sýningartímar þáttana hafa ekki verið ákveðnir, en þeir verða sýndir tvisvar hver. Í haust mun svo koma út DVD diskur með þáttunum. Ameríska motocrossið hófst um síðustu helgi og hér er komið flott frétta-video frá RacerX. Við minnum fólk á að síðasti dagur til að leigja tímatökusenda fyrir motocrosskeppnina á sunnudaginn er á morgun fimmtudag. Eftir það verða engir sendar leigðir. Við viljum biðja fólk um að hringja og panta tímanlega. Kveðja, Nítró | ||