Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Vorið að koma :)

Það er búið að vera skemmtilegt í sandinum í vetur og hér er smá upptaka sem ég náði af
Eyþóri #899 á 70 km hraða út um gluggann á bílnum, þið fyrirgefið hristinginn.
Og svo er smá preview af nýjasta kaflanum í MotoMos.

[flv width="460" height="310"]http://www.internet.is/mx/mx/gf/gf.flv[/flv]


Myndir frá Íslandi í BMW bók

h4572Út er komin bókin Adventure Riding Techniques eftir Robert Wicks hjá bókaútgáfunni Haynes. Þessi bók er um akstur mótorhjóla í hinum ýmsu svaðilförum og þegar kom að myndefni fyrir bókina komst ekkert annað að hjá höfundi en Ísland. Höfðu útgefendur því samband við íslenska mótorhjólaferðafyrirtækið Biking Viking sem lögðu þeim til BMW hjól og mannskap, auk þekkingar sinnar á landinu til að þetta gæti orðið að veruleika. Einnig var heimsfrægur mótorhjólakappi að nafni Simon Pavey með í för, en hann hefur meðal annars keppt sjö sinnum í París Dakar rallinu. Hann rekur líka skóla fyrir akstur torfæruhjóla í Wales og kenndi Ewan MacGregor og Charley Boorman fyrir hnattferðir sínar. Útkoman af þessari miklu skipulagningu var þriggja daga ferð um hálendi Íslands og afraksturinn meira en 1500 myndir sem teknar voru af Þorvaldi Erni Kristmundssyni ljósmyndara og eru þær uppistaðan af myndum í bókinni. Lesa meira af Myndir frá Íslandi í BMW bók


Sumar í Búlgaríu

Það var heldur betur sumar og sól í Búlgaríu í dag. Þar fór fram önnur umferðin í MX1 í heimsmeistarakeppninni í motocorssi. Hér er smá video frá dótturfélagi MXTV..


Video frá Mývatni

Jonni.is var að birta video frá íscrossinu á Mývatni um daginn…við gefum honum orðið:  
Ég fann loks smá tíma og er búinn að sjóða saman smá klippu frá 3. umferðinni í Ískrossinu ! Ég er ekki frá því að það sé bara skemmtilegra að það sé liðinn smá tími frá keppninni, þá rifjar þetta upp fyrir manni hvað það var fáránlega gaman á ísnum í vetur !


Videosamkeppni í Hrolli

Videovefsíðan Hrollur stendur fyrir samkeppni um besta vetrar videoið.
Einu skilyrðin eru að það sé íslenskt og tekið upp í vetrarumhverfi, þ.e snjó eða ís.
Svo verður netkostning um besta myndbandið í lok apríl. Stuttar, langar, með eða án tónlistar skiptir engu máli tökum á móti öllum og látum netið.
Flott verðlaun eru í boði.
Smellið á www.hrollur.is og sendið inn skemmtilega klippur.


Síðasti möguleiki að næla sér í árskort á vortilboði

…er í dag. Smellið hér til að lesa meira

Síða 7 af 7« Fyrsta...34567