Myndir frá Íslandi í BMW bók

h4572Út er komin bókin Adventure Riding Techniques eftir Robert Wicks hjá bókaútgáfunni Haynes. Þessi bók er um akstur mótorhjóla í hinum ýmsu svaðilförum og þegar kom að myndefni fyrir bókina komst ekkert annað að hjá höfundi en Ísland. Höfðu útgefendur því samband við íslenska mótorhjólaferðafyrirtækið Biking Viking sem lögðu þeim til BMW hjól og mannskap, auk þekkingar sinnar á landinu til að þetta gæti orðið að veruleika. Einnig var heimsfrægur mótorhjólakappi að nafni Simon Pavey með í för, en hann hefur meðal annars keppt sjö sinnum í París Dakar rallinu. Hann rekur líka skóla fyrir akstur torfæruhjóla í Wales og kenndi Ewan MacGregor og Charley Boorman fyrir hnattferðir sínar. Útkoman af þessari miklu skipulagningu var þriggja daga ferð um hálendi Íslands og afraksturinn meira en 1500 myndir sem teknar voru af Þorvaldi Erni Kristmundssyni ljósmyndara og eru þær uppistaðan af myndum í bókinni. Að sögn Njáls Gunnlaugssonar hjá Biking Viking er bókin einstaklega góð kynning á landinu og því sem það hefur upp á að bjóða fyrir ævintýraferðir á mótorhjólum. “Það var nánast sama hvert við fórum með þá, alls staðar var myndefni og á þessum þremur dögum höfðu þeir fengið allar þær myndir sem þeir þurftu, og meira til” sagði Njáll. Hægt er að panta bókina beint frá Amazon.com eða Haynes.com.

PDF skjal, frétt frá BMW um útgáfu bókarinnar, inniheldur sýnishorn úr bókinni. Smella hér

Myndatexti:
Frá vinstri: Robert Wicks höfundur, Greg Baker meðhöfundur, Simon Pavey mótorhjólakappi og fyrirsæta.

Frekari upplýsingar veitir Njáll í síma 898-3223

Skildu eftir svar