Íþróttalæknisráðstefna ÍSÍ

ÍSÍ stendur fyrir íþróttalæknisfræðiráðstefnu 2. – 4. apríl n.k. sem er öllum opin.

Að þessu sinni verður megin áhersla lögð á íþróttasálfræði. Aðal fyrirlesari ráðstefnunnar verður Dr. Chris Harwood íþróttasálfræðingur við Loghborough háskólann í Bretlandi. Hann er meðal annars í ritstjórn The Sport Psychologist og the Journal of Applied Sport Psychology.

Efni sem Chris Harwood mun fjalla:

Fimmtud: Íþróttasálfræði fyrir ungt afreksfólk í knattspyrnu Föstudag: Rannsóknir á streitu meðal foreldra iðkenda Laugard: Að efla hugræna færni gegnum samskipti þín við iðkendur

Auk hans verða fjölmargir áhugaverðir fyrirlestrar á sviði sálfræðinnar. Meðal þeirra má nefna fyrirlestranna; Vinna íþróttasálfræðings með knattspyrnulið, Vinna íþróttasálfræðings með einstakling, Hugræn færni og árangur í íþróttum ásamt fyrirlestri Sigurðar Ragnars þjálfara kvennalandsliðsins, Hugarfar sigurvegarans.

Meðal annarra atriða sem fjallað verður um á ráðstefnunni eru: Skyndidauði íþróttamanna, nýjar reglur í lyfjaeftirliti, siðareglur í íþróttum, íþróttameiðsl unglinga – brottfall úr íþróttum, ofþjálfun íþróttafólks, áverkar í handknattleik, næring og fæðubót ásamt fleiru.

Fyrirlesarar eru: Dr. Chris Harwood íþróttasálfræðingur • Dr. Med. Gunnar Þór Gunnarsson hjartalæknir • Dr. Sigurbjörn Árni Arngrímsson dósent • Stefán Ólafsson sjúkraþjálfari • Elís Rafnsson sjúkraþjálfari • Fríða Rún Þórðardóttir íþróttanæringarfræðingur • Skúli Skúlason formaður lyfjaráðs ÍSÍ • Hafrún Kristjánsdóttir sálfræðingur • Rúnar Helgi Andrason sálfræðingur • Haukur Ingi Skúlason meistaranemi í sálfræði • Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþj./fræðslustjóri KSÍ • Ólafur Rafnsson lögfræðingur/forseti ÍSÍ • Helga Magnúsdóttir formaður heilbrigðisráðs ÍSÍ.

Ráðstefnan verður haldin í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og stendur frá kl. 17-22 fimmtudag og föstudag og frá kl. 10-16:30 á laugardag. Dagskrá og skráningu má nálgast hér eða hafa samband í síma 514-4000. Vinsamlegast skráið ykkur á netfangið namskeid@isi.is í síðasta lagi föstudaginn 27. mars. Skráningargjald er 5.000 krónur.

Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu ÍSÍ, www.isi.is eða í síma 514-4000.

Skildu eftir svar