• Forsíða
  • Spjall
  • Smáauglýsingar
  • Félögin
    • VÍK
      • Lög VÍK
      • Stjórn VÍK
      • Afsláttur
    • MotoMos
    • Tengiliðir
  • Að hjóla
    • Hvar má keyra?
    • Gættu að landinu
    • Þjálfun
    • Keppnisdagatal
    • Úrslit úr keppnum
    • Öryggi þitt
    • Brautir
      • Bolaalda
      • Álfsnes
      • MotoMos
      • Sólbrekkubraut
      • Þorlákshöfn
      • Akrabraut
      • Akureyri
      • Selfoss
  • Tenglar
    • Senda inn tengil
    • Íslandsmeistarar
  • Vefalbúm
  • Félagakerfi
    • Félagakerfi VÍK
      • Fjölskylduskráning í VÍK
    • MotoMos Félagsskráning
    • Félagakerfid
  • Um vefinn
    • Auglýsingar
    • Fréttaskot
    • Kennsla í notkun síðunnar
    • About the site in English
    • Gamlar fréttir
  • Námskeið VÍK

Vor í lofti

Vefstjóri | 30. mars, 2009 | 7:42

Það var vor í lofti á Ítalíu í gær þegar fyrsta umferðin af heimsmeistarakeppninni fór fram. Það rigndi sem sagt eins og enginn væri morgundagurinn. Seinni umferðinni var aflýst en hér er videoklippa frá fyrri umferðinni í mx1.

Athugasemdir:
1 stk »
Flokkar
MXTV, Motocross, Útlönd

Er hjólið þitt læst?

Vefstjóri | 28. mars, 2009 | 18:01

lockFyrir fáeinum árum, var það fremur fátítt að torfæruhjólum væri stolið, en nú er tíðin önnur. Nú hefur þjófnuðum fjölgað það mikið, að nauðsynlegt er að læsa hjólinu í skúrnum, en það sem er verra er að sum hjólin hafa ekki enn fundist og eru um 30 hjól eftirlýst hjá Lögreglunni, það er 30 hjólum of mikið!
Það á ekki að vera hægt að fela hjól í þessu landi!
Við þurfum öll að hafa augun hjá okkur , enda er það allra hagur að ekki sé hægt að nota stolið hjól. Það að kaupa stolið hjól, er það sama og að brenna féð, því eignarrétturinn er alltaf eigandans.
VÍK hefur sett saman lista eins og í fyrra þar, sem stellnúmer og mótorstærð hjólanna koma fram en, því miður er listinn hjá Lögreglunni ekki svo ýtarlegur. Stellnúmer hjólanna er á stammanum, bakvið framljósið / kross-spjaldið, gjarnan er búið að slípa stellnúmer stolinna hjóla niður, en það er ekki hægt fela.
Verum vakandi og finnum hjólin!

Listi yfir stolin hjól

Athugasemdir:
2 stk »
Flokkar
Fréttir

Heimsmeistaramótið í Motocross byrjar á sunnudaginn

EiS | 27. mars, 2009 | 20:31
Hliðin falla kl. 10:00 á sunnudaginn

Hliðin falla kl. 10:00 á sunnudaginn

Heimsmeistaramótið í Motocross hefst á sunnudaginn.  Fyrstu tvær umferðirnar verða í Faenza á Ítalíu og mæta 30 lið til leiks.  MX1, heimsmeistararnir Steve Ramon og David Philippaert munu reyna að ná fyrri hæðum, en það verður ekki auðvelt þar eð fjöldi toppökumanna hafa sömu markmið og þeir.  Meðal annarra mun MX2 heimsmeistarinn, Antonio Cairoli, reyna fyrir sér í fyrsta sinn í MX1.  Eins og endranær verður ekkert gefið eftir fyrr en þeim köflótta er veifað.
Hver umferðin rekur aðra fram á haustið og endar veislan með  ‘MX of Nations’  þann 3. og 4. október – að þessu sinni á Ítalíu.
Þeir sem hafa aðgang að ‘Motors TV’ geta fylgst með mótinu í beinni n.k. sunnudag.  Útsending hefst kl. 10:00.

Athugasemdir:
0 »
Flokkar
Fréttir, Motocross, Útlönd

Heimsmeistaramótið í Enduro hafið

EiS | | 17:45
dknight1

David Knight endaði í 6. sæti í E3 flokknum, eftir fyrstu helgina

WEC Enduro 2009 hófst um s.l. helgi.  Allir helstu kapparnir mættu til leiks fyrstu keppnishelgina sem fram fór í Portúgal.
Önnur umferð fer svo fram núna um helgina á Spáni.  BMW mætir  þar með David Knight fremstan í flokki.  Ekki tókst nógu vel til hjá þeim um s.l. helgi og má búast við að þeir reyni allt sem þeir geta til að gera betur að þessu sinni.

Athugasemdir:
0 »
Flokkar
Endúró, Fréttir, Útlönd

Jæja þá er komið að því………

gudnif | | 0:45

Jæja þá erum við byrjaðir að reyna standsetja brautina,  ýmislegt þarf að gera því við komum ekkert sérstaklega vel undan vetri.  Vonumst til með að geta komið með einhverjar skemmtilegar breytingar, erum reyndar ekkert í neinni tímaþröng þar sem ég er handleggsbrotinn:(  hahaha.  Og fólk má alveg fara að safna fyrir félagssgjöldum því það er ekki ókeypis að koma þessu í stand.


Að sjálfsögðu er Eysteinn mættur með ýtuna sína,  og vinnur eins og maniac og Þórir stendur á kantinum þegar þarf að fylla á tankinn hjá Eysteini.   Friðgeir Óli er búinn að vera duglegur að tína allar stangir úr brautinni svo strákarnir keyri ekki yfir þær á ýtunni, en svo má líka aðeins leika sér:)

Og það er alltaf sama sagan með hann Eystein, það er alltaf “all nighter”

Og að sjálfsögðu auglýsum við hér á vefnum og annarsstaðar þegar við getum opnað:)

Kveðja,  Guðni F

Athugasemdir:
0 »
Flokkar
MotoMos

Aðalfundur VÍK var í gær

Vefstjóri | 26. mars, 2009 | 20:55

motogp10.gifAðalfundur VÍK var haldinn í gærkvöldi, 25. mars. Framkvæmd voru helstu aðalfundarstörf s.s. farið yfir reikninga og skýrslu stjórnar og kosið í nefndir og stjórn. Tveir nýir menn bættust í stjórn, þeir Hrafn Guðbergsson og Ólafur Þór Gíslason en Kristján A. Grétarsson vék úr stjórn. Hrafnkell Sigtryggsson var endurkjörinn formaður eins og aðrir stjórnarmenn. Skýrsla stjórnar, reikningar félagsins, fundargerð aðalfundar og helstu atriði fundarins má lesa hér. Ágæt mæting var á fundinn og sköpuðust góðar umræður í lok fundarins.

Lesa meira »

Taktu þátt í umræðum í þessu spjalli

Athugasemdir:
0 »
Flokkar
Félagsstarf
Tags
Aðalfundur

Nýtt útlit

Vefstjóri | 25. mars, 2009 | 22:37

Motocross.is opnar nú í nýju og fersku útliti. Vefurinn hefur verið í uppherslu undanfarnar vikur og hér sjáið þið árangurinn. Meðal annars er búið að íslenska vefinn að fullu, bæta athugasemdakerfið og bæta við tenglasafni. Einhverjar breytingar og stillingar eru svo á leiðinni, stórar og smáar.

Þeir sem hafa haft aðgang að síðunni halda honum áfram og eru allir hvattir til að nýskrá sig hér ef þeir hafa ekki skráð sig enn. Þeir sem vilja fá mynd af sér við athugasemdir og innlegg í spjallið geta skráð inn myndina sína hér. Muna að nota sama email og þið skráðuð ykkur með inná motocross.is.

Endilega lýsið áliti ykkar á nýja lúkkinu og komið með hugmyndir ef einhverjar eru.

Við erum einnig að leita að fréttariturum og greinaskrifurum og geta áhugasamir haft samband við vefstjori@motocross.is

f.h. vefnefndar
Hákon

Athugasemdir:
5 stk »
Flokkar
Fréttir

Innskráning



  • Nýskráning
  • Týnt lykilorð?

Nýlegar athugasemdir

  • Oli Gisla
    ATH VÍFA brautin er að sjálfsö...
  • aron berg
    og ótrúlegt hvað ég get ekki...
  • aron berg
    ótrúlegt að eitthverji r hvað...
  • #40
    Glæsilegt. Til hamingju með samning...
  • Helena
    Við ættlum að taka þetta bara skref...
  • GK
    Glæsilegt. Til lukku með þetta. Nú er...
  • kgm
    Flottust! Til hamingju VÍR.
  • theDude
    Til hamingju með þetta. Á að setja...

Flokkar

  • 35+
  • Aðsendar greinar
  • Ástand brauta
  • Dakar
  • Endúró
  • Events
  • Félagsstarf
  • Fjórhjól
  • Freestyle
  • Fréttir
  • Heyrst hefur að ….
  • Íscross
  • Keppnir
  • Klaustur
  • Krakkar
  • Motocross
  • MotoMos
  • MSÍ
  • MXoN
  • MXTV
  • Netviðtalið
  • Skemmtiefni
  • Slóðar
  • Stelpur
  • Supercross
  • Supermoto
  • T&T
  • Tips og Trix
  • Trial
  • Umhverfismál
  • Unglingar
  • Úrslit
  • Útlönd
  • Vefverslun

Stikkorð

Þorlákshöfn álfsnes úrslit þjálfun Akureyri bikarar Bolaalda Bryndís Chad Reed dagatal Endúró Endurocross Hella Horn í horn hornafjörður Iceland Jólagjöfin í ár Keppnir Keppnis Klaustur krókurinn kreppukeppni Líklegur LEX Games Mývatn miðnæturenduro midnight Motocross MotoMos MSÍ MXoN MXTV Myndir OffRoad Race Sólbrekka Signý SixDays Skráning Stolið hjól usa VÍR vestmannaeyjar vintage X games

Nýlegt spjall

  • TÍMATÖKUSENDIS HJÁLP

    af SiljaHaralds

  • Motoring á ínn á morgun miðvikudag 21/07 motocross VÍR

    af stigurkeppnis

  • Smáauglýsingar á Motocross.is

    af admin

  • Far Rvk-Austurland?

    af herdishulda

Nýjar smáauglýsingar

  • til sölu suzuki rm 85 03 bw

    er með suzuki 2003 árg big wheel til sölu, hjó...
    [Read more]

  • Yamaha-MT03

    Yamaha MT03

    Gullfallegt Yamaha MT03 2007 árgerð ekið 5.000k...
    [Read more]

  • Til-slu-Kawasaki-kx450f--Skifti--enduro

    Til sölu Kawasaki kx450f , Skifti á enduro.

    Til sölu Kawasaki kx450f ´08 hjólið er í top...
    [Read more]

Ástand brauta

  • Bolaöldubraut
  • Motomos í toppstandi.
  • Bolaöldubraut.

Heyrst hefur að...

  • Selfossbrautin sé í TOPPSTANDI
  • Sérsveitin fylgist með akstri utan slóða á Reykjanesi
  • systkyni séu að fæðast

Enduro.is

  • Endurocross um Verslunarmannahelgina á útihátíðini Neistaflugi
  • Slóðavinir fá styrk úr pokasjóði
  • Klaustursþátturinn endursýndur

Trial.is

  • Endurocross um Verslunarmannahelgina á útihátíðini Neistaflugi
  • Sherco akademían

Leit

Síða 1 af 6123456»
OPEX 136 queries. 0,705 seconds