Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


…að spurning hvort einhver stríði Einari núna?


…að Steingrímur sé einbeittari en nokkru sinni, kominn á nýtt hjól og hvaðeina!


Meira Íscross!

Nú er aðeins tæp vika í aðra umferðina í N1 Íslandsmótinu í Ískrossi sem fram fer á Mývatni þann 14. febrúar næstkomandi. Búið er að opna fyrir skráningu á www.msisport.is og lýkur skráningu á miðnætti á þriðjudagskvöldið 10/2. Keppnisgjöld eru kr. 5000 í hvern flokk, en eins og áður verður keppt í þremur flokkum, Opinn flokkur þar sem skrúfur og ísnálar eru leyfilegar, Vetrardekkjaflokkur þar sem eingöngu fjöldaframleidd nagladekk eru leyfð og svo Kvennaflokkur á fjöldaframleiddum nagladekkjum. Athugið að á árinu 2009 mun MSÍ ekki gera neinar undantekningar varðandi skráninguna, henni lýkur þegar henni lýkur og ekkert væl eftir það.

Notast verður við AMB tímatökusendana eins og áður, en þá verður hægt að leigja bæði hjá Nítró í Reykjavík og á Akureyri fyrir þá sem ekki eiga senda. Fyrirkomulag keppnanna verður með sama sniði og áður, þ.e.a.s. opnar tímatökur í hverjum flokki þar sem menn og konur vinna sér inn rásstað í samræmi við tíma og svo þrjú hít í hverjum flokki. Stigagjöf er sú sama og í motocrossi 25 stig fyrir fyrsta sæti, 22 fyrir annað, o.s.frv. Notast verður við startljósin eins og áður þar sem almenn ánægja var með þann búnað.
Þess má geta að nú í vikunni var ísinn mældur á vatninu og er hann 56cm !

Lesa meira af Meira Íscross!


Geðveikt næturmotocross!

Næturmotocrossið í Bolaöldu í gærkvöld var hreinasta snilld. Frábært veður, stafalogn, tunglskin og 10 stiga frost. Kuldinn skipti ótrúlega litlu máli. Brautin var ótrúlega flott, uppstökk og lendingar mjög góðar. Að vísu var brautin aðeins þrengri en vanalega en það kom ekki svo mikið að sök. Flottast við þetta var samt að sjá ljósashowið af 15 hjólum, höfuðljósum og ljósakerrum um alla braut – hrein snilld! Á laugardaginn er sama spáin þannig að það lítur vel út með helgina og engin ástæða til að láta sér leiðast um helgina.

Painterinn helæstur eins og vanalega! :)

Painterinn helæstur eins og vanalega :)

Ps. menn hafa mikið spurt um slit á nagladekkjum – við teljum það vera mjög lítið í þessu. Brautin er þakin snjó, undirlagið er gaddfreðið og gripið mjög svipað og á ísnum þannig að dekkin eru jafngóð eftir

Næturmotocross í Bolaöldu á fimmtudagskvöldið kl. 20

Á fimmtudagskvöldið verður gerð tilraun með að keyra næturmotocross í Bolaöldubrautinni. Þeir sem prófuðu brautina um helgina voru gríðarlega ánægðir með aðstæður og skemmtu sér frábærlega. Við erum búnir að fá lánaðar tvær ljósakerrur sem lýsa brautina mjög vel upp í snjónum. Garðar mætir snemma og fer yfir brautina eftir þörfum og gerir húsið og kaffið klárt.Nú er bara að mæta með trella/karbíta undir hjólunum og láta vaða. Miðarnir fást í Litlu kaffistofunni – sjáumst annað kvöld.


Fjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun

Fjarnám ÍSÍ á 1. stigi þjálfaramenntunarinnar fer af stað mánudaginn 16. febrúar næstkomandi. Um er að ræða 60 stunda nám, metið til tveggja eininga enda um sama nám að ræða og kennt er í ÍÞF 102 í framhaldsskólum landsins.
Námið tekur átta vikur og er verkefnum skilað vikulega, auk lokaverkefnis. Þátttökugjöld eru kr. 24.000.- og eru þá öll námskeiðsgögn innifalin. Þátttakendur þurfa að hafa lokið grunnskólaprófi. Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir mánudaginn 16. febrúar. Lesa meira af Fjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun

Síða 4 af 41234