Fjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun

Fjarnám ÍSÍ á 1. stigi þjálfaramenntunarinnar fer af stað mánudaginn 16. febrúar næstkomandi. Um er að ræða 60 stunda nám, metið til tveggja eininga enda um sama nám að ræða og kennt er í ÍÞF 102 í framhaldsskólum landsins.
Námið tekur átta vikur og er verkefnum skilað vikulega, auk lokaverkefnis. Þátttökugjöld eru kr. 24.000.- og eru þá öll námskeiðsgögn innifalin. Þátttakendur þurfa að hafa lokið grunnskólaprófi. Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir mánudaginn 16. febrúar.
Allar nánari upplýsingar um námið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur sviðsstjóri fræðslusviðs í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is.
Vinsamlegast sendið þessar upplýsingar áfram innan ykkar raða,
Með bestu kveðju og fyrirfram þökk,
Viðar Sigurjónsson
Sviðsstjóri Fræðslusviðs ÍSÍ
Sími: 460-1467 & 863-1399

Skildu eftir svar