Bolaöldubrautin rudd í dag

Garðar að fara uppí Bolaöldu á eftir og kanna með aðstæður og ryðja brautina svo hægt verði að keyra hana á nöglum/karbítum. Allir eru hvattir til að mæta upp eftir og prófa.

Brautin var keyrð á þriðjudaginn og þá voru Einar, Gunni og fleiri að stökkva pallana og skemmta sér fyrir allan peninginn. Brautin verður bara betri í dag þannig að það hlýtur að verða tóm hamingja þar. 🙂

Kveðja, Keli

3 hugrenningar um “Bolaöldubrautin rudd í dag”

  1. Þetta var svo klikkað gaman. Allir út að hjóla!!! Ég var ekki á trella bara mokaði slatta af skrúfum í dekkið og klipti þær í sundur. þarf ekki að vera of dýrt að koma sér í þetta

    Frábær dagur takk fyrir mig Guðni

  2. Þetta var fáránlega gaman, brautin var ótrúlega skemmtileg. Ruttar í pöllum og böttum og smá enduro hér og þar. Púkinn og Painterinn með fast í botni eins og vanalega og bara gaman hjá öllum. AFTUR Á MORGUN! 🙂 K

Skildu eftir svar