MXTV á fullri ferð
Vefstjóri | 30. desember, 2008 | 19:19Viðtal númer 2 í röðinni hjá MXTV er komið í loftið. Rætt er við Skúla Þór Johnsen sem er í Honda-liðinu og kynnumst við því aðeins kappanum.
http://www.motocross.is/video/mxtv/12/skuli.flvViðtal númer 2 í röðinni hjá MXTV er komið í loftið. Rætt er við Skúla Þór Johnsen sem er í Honda-liðinu og kynnumst við því aðeins kappanum.
http://www.motocross.is/video/mxtv/12/skuli.flv
Guðmundur Kort er akstursíþróttamaður AÍH 2008. Guðmundur hefur sýnt miklar framfarir á árinu 2008 og er án efa sú mikla vinna sem hann hefur lagt á sig undanfarin ár að skila sér. Hann varð Íslandsmeistari í 85cc unglingaflokki auk þess að hann vann sama flokk á Landsmóti UMFÍ.
Auk Guðmundar hlaut viðurkenningu Bryndís Einarsdóttir sem er Íslandsmeistari í 85cc kvennaflokki.
Dakar-Upphitunin sem auglýst var hér fyrir nokkrum dögum, fer fram í húsakynnum Bændasamtakanna, Hótel Sögu, og hefst klukkan 20:00. Gengið er inn um norðurenda byggingarinnar, móts við Þjóðarbókhlöðuna, lyftan tekin upp á þriðju hæð og þá er salurinn á hægri hönd.
Sjá fréttina hér
Karl Gunnlaugsson formaður MSÍ var í viðtali í þættinum ‘Sportið mitt’ á sjónvarpsstöðinni ÍNN í gær þar sem hann fjallar um stöðuna í mótorsportinu. Þátturinn er endursýndur reglulega á stöðinni um helgina.
Motocross.is óskar landsmönnum öllum nær og fjær gleðilegra jóla. Sérstaklega jólkveðju fá þeir sem voru á main jettinu í allt sumar, jettuðu svo blöndunginn aftur í nóvember og héldu áfram að snúa uppá rörið í vetur. Vefnefndin óskar þess heitast að þeir sem ætli að keppa næsta sumar séu komnir með æfingaprógram í hendurnar og byrji að taka hraustlega á því 3.janúar. Engar afsakanir.
Hinir sem ætla ekki að keppa fá einnig hlýjar kveðjur og vonandi bætast ekki mörg kíló við um jólin. Muna svo eftir að fara einu sinni í ræktina fyrir páska, bara til að minnast þess hversu gaman er að hjóla. Blindhæð og beygja…það er lífið, að eilífu, AMEN.
Eyþór Reynisson var með fljótari mönnum á Klakanum í sumar en lærbrotnaði á Akureyri sem varð til þess að hann missti talsvert úr. Eyþór er þó hvergi af baki dottinn og hér er viðtal við kappann. Guðni Friðgeirsson vann viðtalið fyrir MXTV og er þetta fyrsta viðtalið af mörgum sem munu birtast næstu vikurnar.
http://www.motocross.is/video/mxtv/10/EYTOR.flvVinsældir vetrar endúró hafa aukist ár frá ári og er svo komið að varla líður sú helgi að ekki megi sjá tví- eða fjórhjól reyna sig í snjónum, við bæjarmörkin eða til fjalla. Mikil ábyrgð fylgir akstri í snjó og hafa verið að koma upp mál þar sem leiða má líkur að því að tvíhjól hafi spólað sig niður í gegnum snjóinn og ofan í ófrosinn eða lausfrosinn gróður og mosa. Þetta veldur sárum, svipuðum og þeim sem myndast við utanvegaspól á sumrin. VÍK vill því beina þeim tilmælum til þeirra sem stunda vetrar endúró að aka eftir aðstæðum. Einnig má benda á reglugerð um takmarkanir á umferð í náttúru Íslands í þessu ljósi, en þar segir í 4. gr. um akstur utan vega: “Bannað er að aka vélknúnum ökutækjum utan vega í náttúru Íslands. Heimilt er þó að aka vélknúnum ökutækjum á jöklum svo og snævi þakinni og frosinni jörð svo fremi að ekki skapist hætta á náttúruspjöllum.”
af Armani
af siggihaddi
af Atli
af admin
Nýlegar athugasemdir
Þeir sem að ruddust framfyrir með því...
Er hægt að bæta við keppanda í...
Þú ert skráður í keppnina ef þú...
hvar getur maður séð hvort maður sé...
Það er ekki alveg svo einfa...
306 keppendur = 153 lið ?
Nei, það er ekki hægt að...
Hvernig er það með keppnis...