Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Aðalfundur torfæruhjóladeildar AÍH

Aðalfundur Torfæruhjóladeildar AÍH verður haldinn í kvöld, miðvikudaginn 12. nóvember, kl. 20:30 í Álfafelli, Íþróttahúsinu við Strandgötu. Álfafellið er á 2. hæð og er gengið inn um gafl hússins (þann sem snýr að Hafnarfjarðarkirkju). Hvetjum við félagsmenn til að fjölmenna og taka þátt. Dagskráin er eftirfarandi: Lesa meira af Aðalfundur torfæruhjóladeildar AÍH


Horn í horn video

Hér má sjá 3 video frá Horn í horn túrnum hans Einars Sverrissonar. Svavar Kvaran félagi Einars setti klippti myndirnar um túrinn. Smellið á (more…) hér fyrir neðan til að sjá hina tvo þættina.

3. Þáttur af Horn í Horn – Túrinn

Þriðji og síðasti hluti seríunnar þar sem sagt er frá túrnum
Allt gekk upp eins og best var á kosið og landið þverað á rúmum 15 klst.

Lesa meira af Horn í horn video


Skemmtileg helgi

Það var alveg frábært veður um helgina og ótrúlega gaman
að komast út að hjóla.

Ekki laust við að manni leið eins og það
væri komið mitt sumar þegar Eyþór #899 kom
brunandi fram úr manni og hefur greinilega engu gleymt.

Mosó brautin er eiginlega í frábæru standi núna og farið að myndast margar
línur í gegnum flestar beygjur, eins má sjá hér á blogginu að Bolaalda hafi verið
mjög skemmtileg um helgina . Um að gera að nýta tækifærið að hjóla
því mér skilst að það eigi að fara kólna aftur seinni part vikunnar.


Mosó í góðu standi 11.nóv

Allir út að hjóla!!! Brautin í Moso er mjög góð núna miðað við árstíma, vorum að slóðadraga hana í dag þannig að það verður pottþétt frábært að hjóla í henni á morgun, ekkert frost í henni en að sjálfsögðu smá bleyta enda er er 8 nóvember = vetur.

Góða skemmtun og muna eftir miðum á N1 í Mosó!!!

Kveðja, Guðni


MSÍ fundargerð frá síðustu helgi

Formannafundur MSÍ var um síðustu helgi en sá fundur hafði meðal annars keppnisdagatal næsta árs á sinni könnu. Þó svo keppnisdagatalið hafið verið eitt af stóru málunum á dagskrá voru þar nokkur önnur mál. Karl Gunnlaugsson var kjörinn formaður MSÍ og tekur hann við af Guðmundi Hannessyni sem heldur áfram í stjórn. Keppnisgjald í 85cc flokkum verður lækkað í 3.000 kr á næsta ári og reglur um kærur verða endurskoðaðar og birtar í vetur.
Einnig voru reglum um val keppenda á MXoN breytt. Þar var ákveðið að 2 efstu í Íslandsmóti í opnum flokki veljast sjálfkrafa í MX1 og MX-Open í MXoN og sá efsti í MX2 er valinn sjálfkrafa í MX2 flokkinn á MXoN það árið. Farið er eftir stöðu í Íslandsmóti eftir 4 umferðir eða þegar skilafrestur er á liði til FIM.

Hér er annars það sem MSÍ hefur gefið frá sér nú þegar frá helginni:

Skýrsla stjórnar MSÍ fyrir formannafund

Fundargerð formannafundar MSÍ 1.nóv 2008

Nýjar reglur um samþykkta þjálfara MSÍ

Nýjar reglur um þátttöku erlendra ríkisborgara í mótaröðum MSÍ

Keppnisdagatal MSÍ 2009


Horn í horn myndasýning

Í framhaldi af aðalfundi Slóðavina sem haldin verður í bíósal Hótel Loftleiða, laugardaginn 8. nóvember kl. 13:00, ætlar Einar Sverrisson að segja frá 16 klukkustunda svaðilför á torfæruhjóli þvert yfir hálendið. Einar er væntanlega eini afinn á landinu sem leggur á sig að ferðast einn og óstuddur yfir hálendið á torfæruhjóli, fjarri allri aðstoð, utan GSM-sambands, hjólandi yfir jökulár, eyðisanda og grýttar slóðir. Eitt af markmiðum túrsins var að fara frá Reykjanesvita og að Fonti á Langanesi á sem styrstum tíma. Má með sanni segja að það hafi tekist með glans. Einar ætlar að frumsýna myndband úr túrnum og sýna ljósmyndir, auk þess að segja okkur frá undirbúningnum, ferðalaginu sjálfu og hvað hvatti hann til leggja þetta á sig. Landið hefur verið þverað áður á torfæruhjólum en Einar er sá fyrsti til að hjóla þetta aleinn á svona stuttum tíma. Myndasýningin hefst um kl. 15:00, eða eftir kaffihlé aðalfundar. Slóðavinir bjóða öllum sem áhuga hafa velkomna.

Síða 5 af 10« Fyrsta...34567...Síðasta »