Horn í horn video

Hér má sjá 3 video frá Horn í horn túrnum hans Einars Sverrissonar. Svavar Kvaran félagi Einars setti klippti myndirnar um túrinn. Smellið á (more…) hér fyrir neðan til að sjá hina tvo þættina.

3. Þáttur af Horn í Horn – Túrinn

Þriðji og síðasti hluti seríunnar þar sem sagt er frá túrnum
Allt gekk upp eins og best var á kosið og landið þverað á rúmum 15 klst.

1. Þáttur af Horn í Horn – Flugið

Hér er sagt frá undirbúning ferðarinnar og skemmtilegum flugtúr sem farinn var til að koma fyrir bensíni á hálendinu

2. Þáttur af Horn í Horn – Brottförin

Myndir teknar við undirbúning ferðarinnar kvöldið sem Einar lagði í hann.

8 hugrenningar um “Horn í horn video”

  1. Já, þetta var heldur betur heljarinnar túr. Ég held að EiS sé búinn að setja þetta efst á listann:

    „Ten things you must do before you’re 50“ 🙂

  2. Eðall.
    Ein smá athugasemd þó. Hann stoppar á Þórshöfn, en ekki Raufarhöfn eins og segir í myndbandinu (til að hitta frúna).

  3. Það er ekki gott að heyra, því það er bara ´pláss fyrir einn Einar-áttavillta á þessu landi !! hehehehe

  4. Hmmm Já þið eruð glöggir! Það stendur Raufarhöfn..en.. rétt !..ég fékk bensín, pulsu og hvatningar-koss á Þórshöfn. Kvikmyndagerðarmaðurinn Svavar Kvaran eitthvað ruglast í öllum þessum smábæjum á norðaustur horninu 😉

Skildu eftir svar