Aðalfundur torfæruhjóladeildar AÍH

Aðalfundur Torfæruhjóladeildar AÍH verður haldinn í kvöld, miðvikudaginn 12. nóvember, kl. 20:30 í Álfafelli, Íþróttahúsinu við Strandgötu. Álfafellið er á 2. hæð og er gengið inn um gafl hússins (þann sem snýr að Hafnarfjarðarkirkju). Hvetjum við félagsmenn til að fjölmenna og taka þátt. Dagskráin er eftirfarandi:
A) formaður íþróttadeildar setur fundinn,
B) kosinn fundarstjóri og fundarritari,
C) formaður flytur skýrslu deildarstjórnar um starfsemi á liðnu starfsári,
D) gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga og gerir grein fyrir fjárhag deildarinnar,
E) kosin stjórn deildar.
(1) formaður,
(2) 2 meðstjórnendur,
(3) 3 menn í varastjórn,
F) kosnir fulltrúar og varafulltrúar á aðalfund félagsins.
G) önnur mál, sem fram kunna að koma.

kv. Stjórn Torfæruhjóladeildar.

Skildu eftir svar